Lífið

Táknræn mynd sem sýnir stærð Helga Tómassonar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jerome Robbins og Leonard Bernstein ásamt Helga Tómassyni árið 1974 þegar þeir unnu saman að Dybbuk.
Jerome Robbins og Leonard Bernstein ásamt Helga Tómassyni árið 1974 þegar þeir unnu saman að Dybbuk.

Helgi Tómasson er sá Íslendingur sem auk Halldórs Laxness og Bjarkar Guðmundsdóttur hefur náð lengst Íslendinga á okkar tímum á alþjóðavettvangi. Þetta skrifar Styrmir Gunnarsson í grein í Morgunblaðinu í dag en bætir við að ekki sé alveg víst að þjóðin sé búin að átta sig á því til fulls.

Egill Helgason er annar dálkahöfundur sem ritar um Helga í tilefni af komu San Francisco-ballettsins til Íslands. Egill segir lífsferil Helga, frá því að alast upp í Vestmannaeyjum og allt til þess að byggja upp einn fremsta ballettflokk heims, vera stórkostlegt ævintýri.

„Heimsókn San Francisco-ballettsins nú er í okkar augum, sem höfum fylgzt með Helga Tómassyni frá upphafi, eins konar hápunktur á vegferð eins mesta afreksmanns sem íslenzka þjóðin hefur alið á okkar tímum,“ skrifar Styrmir.

Myndin hér að ofan, sem tekin var árið 1974, og er á vef Leikminjasafns Íslands, gefur hugmynd um þann sess sem Helgi hafði í listaheiminum þegar hann var á hátindi dansferils síns sem aðaldansari New York City-ballettsins. Tveir af mestu listajöfrum þess tíma, þeir Jerome Robbins og Leonard Bernstein, fengu Helga til samstarfs þegar þeir sömdu ballettinn Dybbuk. Bernstein samdi tónlistina en Robbins dansana og hafði Helga sérstaklega í huga fyrir aðalkarlhlutverkið. 

Þeir Leonard Bernstein og Jerome Robbins hlutu fyrst heimsfrægð fyrir West Side Story-söngleikinn, Bernstein samdi tónlistina og Robbins dansana. Jafnframt leikstýrði Robbins samnefndri kvikmynd með Natalie Wood í aðalhlutverki árið 1961 og hlaut fyrir Óskarsverðlaun sem besti leikstjóri ásamt Robert Wise. Robbins hlaut önnur Óskarsverðlaun fyrir framlag sitt sem danshöfundur. 

Bryndís Schram, sem lærði listdans með Helga Tómassyni í Þjóðleikhúsinu, upplifði sjálf í Washington-borg hvaða stöðu Helgi átti síðar eftir að ná sem stjórnandi San Francisco-ballettsins. Í grein, sem lesa má hér, lýsti hún ferli Helga sem einu stórkostlegasta ævintýri íslenskrar nútímalistar. 

Viðtal var við Helga Tómasson í fréttum Stöðvar 2 í fyrradag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.