Lífið

Dimma er æðisleg og mig langar líka í hund

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 "Dimma er æðisleg,“ segir Saga þar sem hún situr með þessa svörtu, mjúku vinkonu sína í fanginu.
"Dimma er æðisleg,“ segir Saga þar sem hún situr með þessa svörtu, mjúku vinkonu sína í fanginu. Vísir/Ernir
Hún Saga Þórsdóttir verður tíu ára þann 7. nóvember, svo það er stórafmæli í vændum hjá henni.

Skyldi vera gaman að heita Saga?  Já, amma átti hugmyndina af nafninu mínu.

Í hvaða skóla ertu og hver er uppáhaldsnámsgreinin þín?

Ég er í Langó, eins og ég kalla stundum Langholtsskóla, og held mest upp á heimilisfræði út af því að það er svo gaman að baka.

Hlakkar þú til þegar snjórinn kemur? Já, mjög mikið því þá get ég farið á skíði og leikið mér í snjónum með vinum mínum.

Tölvur eða bækur? Mér finnst tölvur skemmtilegri en ég er samt mjög dugleg að lesa.

 

Saga er á fimleikamóti á Akureyri núna.
Heldur þú að draugar séu til? Nei draugar eru ekki til.

Hver eru helstu áhugamálin þín? Fimleikar og dans. Ég er að keppa í fimleikum á Akureyri um helgina.

Hver er erfiðasta fimleikaæfing sem þú getur gert?  Afturábak heljarstökk á slá.

Vá! En hvort finnst þér kettir eða hundar betri?  Mér finnst bæði. Ég á kisu sem heitir Dimma og er æðisleg og mig langar líka í hund. Svo finnst mér líka gaman að fara á hestbak og vera með dýrunum í sveitinni.

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?

Mig langar að verða tannlæknir, leikari og fimleikakennari.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 29. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.