Bíó og sjónvarp

Taugaveiklun hjá Disney: Rogue One fékk dræmar viðtökur í prufusýningum

Birgir Olgeirsson skrifar
Felicity Jones fer með aðalhlutverkið í Rogue One.
Felicity Jones fer með aðalhlutverkið í Rogue One.
Næsta Stjörnustríðsmynd er ekki væntanleg í kvikmyndahús fyrr en í desember en nú þegar berast fregnir af slæmum viðtökum. Um er að ræða myndina Rogue One: A Star Wars Story sem fjallar um sveit uppreisnarmanna sem stelur teikningunum að Helstirninu og gerist þar með áður en söguþráður New Hope byrjar.

Aðaltökum myndarinnar er löngu lokið og myndin á eftirvinnslustigi en topparnir hjá kvikmyndaveri Disney, sem gefur myndina út, fengu nýverið að sjá fyrstu útgáfuna af myndinni í fullri lengd og voru ekki ánægðir að því er fram kemur á vef Page Six. Er því búið að negla niður tökudaga yfir fjögurra vikna tímabil í júlí næstkomandi til að taka upp einhver atriði myndarinnar aftur eða í sumum tilfellum bæta nýjum við.

Page Six segir leikstjóra myndarinnar, Gareth Edwards, þurfa nú að þola að vera undir hæl afar taugaveiklaðra toppa hjá Disney sem munu væntanlega gera miklar kröfur um breytingar. 

„Disney fer ekki í aftursætið og heimtar breytingar því myndin hefur ekki komið vel út í prufusýningum,“ hefur Page Six eftir heimildarmanni sínum.

Heimildarmaðurinn segir jafnframt að boginn sé hátt spenntur hjá Disney eftir gífurlega velgengni sjöundu Stjörnustríðsmyndarinnar, The Force Awakens. „Við berum ábyrgð á þessari kvikmyndaseríu og skuldum aðdáendum hennar að gera eins góða mynd og hægt er.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.