Bryndís Ásmundsdóttir leik- og söngkona bregður sér nú í gervi Amy Winehose og tekur fyrir öll hennar bestu lög á Café Rósenberg í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og lofar Bryndís miklu stuði.
Þó ferill Amy hafi verið stuttur og skrautlegur þá situr eftir frábær tónlist sem á eftir að lifa um aldur og æfi. Bryndís og hljómsveit héldu tónleika á Græna Hattinum fyrir stuttu við algerlega frábærar undirtektir.
Bandið er skipað einvala liði, en um ræðir Ingi Björn Ingason á bassa, Þorvaldur Þór Þorvaldsson á trommur, Birkir Rafn Gíslason á gítar, Valdimar Kristjónsson á hljómborð, Sólveig Morávek tenór sax, Rósa Guðrún Sveinsdóttir baritón sax og Elvar Bragi Kristjónsson á trompeti.
Bryndís hvetur sem fæsta til að láta þessa kvöldskemmtun framhjá sér fara.
Bregður sér í hlutverk Winehouse

Tengdar fréttir

Amy Winehouse tónleikar á Gauknum
Blásið verður til Amy Winehouse tónleika á Gauknum þann 18. júní.

Af hverju þurfti Amy Winehouse að deyja?
Fjölskylda Winehouse hefur lýst yfir óánægju sinni með nýja heimildamynd um ævi söngkonunnar. Leikstjórinn gefur lítið út á gagnrýnina.