Ljóst er að bæta þarf verulega úr öryggismálum ferðamanna og segir Jónas Guðmundsson, ferðamálafræðingur sem vinnur meðal annars að slysavörnum ferðamanna hjá Landsbjörg, málið aðallega snúast um þrjá þætti.
„Í fyrsta lagi snýst þetta um forvarnir og fræðslu en það hefur margt verið gert í þeim efnum undanfarin ár, til að mynda með Safe Travel-verkefninu sem er samstarfsverkefni Landsbjargar, ríkisins og ferðaþjónustunnar en það þarf augljóslega að bæta í,“ segir Jónas.

Í öðru lagi nefnir hann uppbyggingu innviða sem hann segir langt því frá tilbúna í þá miklu fjölgun ferðamanna sem hér hefur orðið.
„Þá er ég tala um uppbyggingu á ferðamannastöðunum sjálfum og svo á vegakerfinu. Hvernig stendur til dæmis á því að við erum ekki búin að setja útskot á svona tíu til tuttugu stöðum á þjóðvegi 1 frá Reykjavík að Jökulsárslóni þar sem ferðamenn geta stoppað og tekið myndir, virt fyrir sér náttúruna og útsýnið. Það ætti að vera lítið mál að fá nokkra aðila úr ferðaþjónustunni, leiðsögumenn eða aðra, til að segja okkur hvar þessi útskot gætu verið og svo væri það bara 100 þúsund króna sekt ef þú stoppar á miðjum veginum,“ segir Jónas.
Þriðji þátturinn sem Jónas nefnir er svo eftirlit og löggæsla sem hann segir að þurfi að stórefla.
„Langstærstur hluti þeirra ferðamanna sem hingað koma fara um Suðurlandið og ég veit að það er fullur vilji hjá lögreglunni þar til að bæta eftirlit og löggæslu. Allt snýst þetta þó um peninga og nú er það svo að vegna niðurskurðar þarf að fækka um eitt stöðugildi hjá lögreglunni á Suðurlandi á sama tíma og verkefnunum fjölgar stöðugt. Hjá björgunarsveitunum eru síðan útköll vegna ferðamanna á hverjum degi og bara í gær voru þau þrjú á Suðurlandi. Það var banaslysið í Reynisfjöru, rúta og bílar sem sátu föst á bílaplaninu við Jökulsárslón og týndur ferðamaður í Skaftafelli.“

Árið 2010 var skýrslu þar sem sett voru fram drög að stefnu í öryggismálum á ákveðnum ferðamannastöðum skilað til stjórnvalda. Landsbjörg kom að þeirri vinnu en aðspurður segir Jónas að nánast ekkert hafi gerst í öryggismálum ferðamanna síðan þá.
„Stjórnvöld verða að fara að hysja upp um sig buxurnar í þessum málum,“ segir Jónas.
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, staðfestir að vegna niðurskurðarkröfu á fjárlögum þessa árs þurfi að fækka um eitt stöðugildi hjá lögreglunni.
„Það er auðvitað algjörlega galið að lenda í niðurskurði þegar verkefnin hafa aldrei verið fleiri. Umdæmið er 32 þúsund ferkílómetrar og við erum með 34 lögreglumenn alls. Ellefu eru á vakt á öllu Suðurlandinu í einu en við erum einfaldlega komin í þrot bæði með mannskap og verkefni,“ segir Sveinn Kristján í samtali við Vísi.

Samþykkt var fyrir áramót að setja 400 milljónir til viðbótar í löggæslu á landinu en Sveinn segir að ekki sé enn búið að skipta þeim fjármunum niður á lögregluembættin.
„Við erum bara að bíða eftir því en bara hér á Suðurlandi vantar lögregluna 200 milljónir. Það vantar einfaldlega orðið mikla peninga til að halda í við þessa þróun sem orðið hefur í fjölda ferðamanna.“
Ákveðið var í gær í kjölfar banaslyssins í Reynisfjöru að hafa lögregluvakt á staðnum á meðan bjart er en Sveinn segir að það sé tímabundin neyðarráðstöfun á meðan verið sé að leggja mat á hættuna sem skapast getur í fjörunni og hvað þurfi að gera þar til að bæta öryggi ferðamanna sem þangað koma. Fundað verður um málið í dag.
„Það er ekki raunhæft að hafa þarna sólarhringsvakt en það er ljóst að þarna þarf að bæta merkingar og vísa fólki með betri hætti á það hversu hættulegt þetta svæði getur verið.“