Efast um fullyrðingar Norður-Kóreu Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. janúar 2016 08:00 Norður-Kóreubúar fylgjast með tilkynningu ríkissjónvarpsins á stórum skjá í höfuðborginni Seúl. vísir/epa
Sérfræðingar hafa sumir hverjir sagt ólíklegt að Norður-Kóreumenn hafi sprengt vetnissprengju í fyrrinótt, eins og þeir hafa stært sig af. Fyrstu mælingar bendi til þess að Norður-Kóreumenn hafi gert tilraun með kjarnorkusprengju úr úrani eða plútoni. Vetnissprengja sé miklu öflugri og það hefði komið fram á jarðskjálftamælum. Ríkissjónvarpið í Norður-Kóreu fullyrti í gærmorgun að árangursrík tilraun hefði verið gerð með að sprengja „litla vetnissprengju”. Þetta væri gert í sjálfsvarnarskyni vegna hættu, sem landinu var sagt stafa af Bandaríkjunum. „Bandaríkin hafa safnað saman öflum sem eru andsnúin Norður-Kóreu og vakið máls á ærumeiðandi mannréttindamálum til að hindra framfarir í Norður-Kóreu,” sagði þulur norðurkóreska sjónvarpsins. Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, er sagður hafa fylgst grannt með sprengingunni, en hann verður 33 ára gamall á föstudaginn. Norður-Kórea gerði tilraunir með kjarnorkusprengingar árin 2006, 2009 og 2013. Í kjölfarið voru samþykktar alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn landinu. Búast má við því að samskiptin við umheiminn versni í kjölfar sprengingarinnar í fyrrinótt.- gb
Mest lesið Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Innlent Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Innlent Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Erlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Íslandsvinurinn OG Maco látinn Erlent Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Enginn læknir á vaktinni Innlent Fleiri fréttir Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Sjá meira