Ástæðan fyrir að lagið er svona umdeild, og þá sérstaklega parturinn í laginu sem má heyra á myndbandinu hjá Perry, er að Kanye er að rappa um Swift. Í textanum segir meðal annars að hann heldur að þau muni einhverntíman eftir að stunda kynlíf og að hann gerði þessa "tík" fræga. Taylor mótmælti textanum harðlega við útgáfu lagsins en eins og Kim Kardashian sjálf sannaði í sumar þá var Taylor búin að gefa leyfi fyrir honum.
Katy Perry og Taylor eru gamlir óvinir en það hefur verið mikil spenna á milli þeirra seinustu ár. Taylor sakar Katy um að hafa stolið undan sér starfsfólki þegar hún var að undirbúa tónleikaferð sína en lítið annað er vitað um málið.
Swift samdi meira að segja lagið Bad Blood, sem má sjá neðst í fréttinni, um ósætti hennar og Perry.
Katy Perry dancing on Famous by Kanye West is everything. QUEEN pic.twitter.com/ISYeV2tGhm
— ☠️ (@KATYPERRYRISES) October 26, 2016