Körfubolti

Leifur dæmir Evrópuleiki tvö kvöld í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leifur S. Garðarsson.
Leifur S. Garðarsson. Vísir/Vilhelm
Körfuknattleiksdómarinn snjalli Leifur S. Garðarsson er kominn til Svíþjóðar þar sem hann dæmir leiki í Evrópukeppni næstu tvö kvöld.

Leikirnir sem Leifur dæmir í dag og á morgun eru leikir í EuroCup kvenna í Svíþjóð og en þeir eru báðir í H riðli keppninnar.

Í kvöld dæmir Leifur leik Umea Udominate við TSV 1880 frá Þýskalandi en leikurinn hefst klukkan sex að íslenskum tíma.

Á morgun færir Leifur sig svo norðar í Svíþjóð og dæmir leik Lulea BBK og Carolo Basket frá Frakklandi.

Meðdómarar Leifs í báðum leikjunum eru þau Rune Larsen frá Danmörku og Viola Györgyi frá Noregi. Eftirlitsmaður er Timo Niemi frá Finnlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×