Bíó og sjónvarp

Sjáðu einn rosalegan „trailer“ úr þriðju xXx-myndinni

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér er kominn einn svakalegur „trailer“ úr framhaldsmyndinni xXx: The Return of Xander Cage.

Um fimmtán ár er síðan karakterinn Xander Cage leit dagsins ljós í myndinni xXx en þá fór leikarinn Vin Diesel með hlutverk hans. Önnur myndin xXx: State of Union kom út árið 2005 en nú er Vin Diesel mættur í þriðja sinn í hlutverki Xander Cage og aldrei öflugri

Í þriðju myndinni má einnig sjá leikarana Samuel L. Jackson, Toni Collette, Ruby Rose, Nina Dobrev, Deepika Padukone, Kris Wu, hasarhetjurnar Dnnie Yen og Tony Jaa og knattspyrnustjörnuna brasilísku Neymar.

Það er leikstjórinn DJ Caruso sem heldur utan um þessa mynd sem er væntanleg í kvikmyndahús 20. janúar næstkomandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.