Fótbolti

Níu þúsund Íslendingar verða á Stade Vélodrome

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stadé Velodrome í Marseille er einn af þeim völlum sem tekinn hefur verið í gegn fyrir EM.
Stadé Velodrome í Marseille er einn af þeim völlum sem tekinn hefur verið í gegn fyrir EM. Vísir/Tómas Þór
Rúmlega tvöfalt fleiri Ungverjar eru mættir til Marseille til að styðja sína menn en Íslendingar. Um níu þúsund Íslendingar verða á Stade Vélodrome þar sem karlalandslið þjóðanna mætast í kvöld en 21 þúsund Ungverjar.

Alls eru 62 þúsund miðar seldir en leikvangurinn tekur um 67 þúsund manns í sæti.

Ungverjar hafa verið mun fyrirferðameiri í miðbænum það sem af er degi og lítur út fyrir að nokkur þjóðhátíðarþynnka sé í gangi á meðal Íslendinga. 

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×