Lífið

Stórkostlegir tónleikar Radiohead slógu í gegn: „Það er frábært að spila loksins á Íslandi“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Radiohead á sviðinu í gær.
Radiohead á sviðinu í gær. Vísir/Hanna
„Það er frábært að spila loksins á Íslandi,“ sagði Thom Yorke, söngvari hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Radiohead sem hélt magnaða tónleika í Laugardalshöll á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í gær.

Eftirvæntingin var gríðarleg eftir fyrstu tónleikum hljómsveitarinnar á Íslandi og voru æstir aðdáendur farnir að mynda röð snemma dags til þess að komast inn í Laugardalshöllina. Radiohead steig á svið klukkan 21.30 og voru margir búnir að bíða í röð klukkutímum saman.

Óhætt er að segja að biðin hafi verið þess virði en Radiohead fór með tónleikagesti í tónlistarlegt ferðalag um feril sinn sem nær aftur til níunda áratugs síðustu aldar.

Frá því að platan OK Computer kom út árið 1997 hefur Radiohead verið efst á baugi tónlistarheimsins og því stórbrotið að fá þessa hljómsveit, sem sögð hefur verið hinir einu sönnu arftakar Bítlanna, til Íslands.

Og tónleikagestir voru ekki sviknir. Thom Yorke, Jonny Greenwood, Phil Selway, Ed O’Brien og Colin Greenwood eru hvergi betri en þegar þeir stíga á svið og þegar Radiohead spilar á tónleikum fer einhver galdur af stað sem erfitt er að lýsa með orðum.

Tónlistin verður ekki mikið fallegri en í laginu Weird Fishes/Arpeggi sem gaf tóninn eftir að Radiohead hafði rúllað í gegnum fimm lög af nýjustu pötu sinni, A Moon Shaped Pool í upphafi tónleikanna.

Klassískir slagarar á borð við No Surprises, Reckoner og My Iron Lung fengu að hljóma áður farið var í gegnum hina heilögu Kid A þrenningu sem hófst á National Anthem og lauk með Idioteque fyrir fyrsta uppklapp.

Við það var eins og áhorfendur, og mögulega einnig Thom Yorke og félagar, hafi áttað sig á því að stutt væri eftir af tónleikunum. Eftir uppklöppin settu þeir einfaldlega allt í gang og tóku sín þekktustu lög, Paranoid Android, Karma Police og Creep. 

Við það trylltist allt og var sérstaklega vel tekið í það þegar Thom Yorke tók lengri útgáfu af Karma Police með áhorfendaskaranum sem tók gríðarlega vel undir. Þakið ætlaði svo bókstaflega að rifna af höllinni þegar talið var í Creep en afar sjaldgæft er að lagið fái að hljóma á tónleikum Radiohead á seinni árum.

Samband Radiohead við lagið er stormasamt en Thom Yorke hefur átt það til að hella sér yfir þá áhorfendur sem biðja um lagið á tónleikum. Nú er öldin önnur og flutning hljómsveitarinnar á þessu goðsagnakennda lagi var stórbrotinn og frábær endapunktur á mögnuðum tónleikum.

Hljómsveitin hefur, líkt og áður sagði, verið starfandi í hartnær þrjátíu ár. Hljómsveitir sem starfa svo lengi deyja oft hægum dauðdaga en tónleikarnir í gær voru merki um það að Radiohead er á ákveðnum hátindi, engin hljómsveit af samsvarandi stærð og frægð er að gera það sem þeir eru að gera. Það jafnast fáar sveitir í tónlistarsögunni á við Radiohead og það sást bersýnilega á tónleikunum í gær.

Radiohead Setlist Secret Solstice 2016 2016, A Moon Shaped Pool

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.