Fanney Lind til Skallagríms: Á nokkrar mjög góðar vinkonur í liðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2016 15:39 Fanney Lind Thomas í leik með Val. Vísir/Vilhelm
Kvennalið Skallagríms hefur fengið mjög góðan liðstyrk fyrir átökin í Domino´s deild kvenna en Fanney Lind Thomas hefur ákveðið að spila með Skallagrím það sem eftir er af tímabilinu. Borgnesingar eru nýliðar í deildinni en hafa verið afar duglegir að bæta við sig reynslumiklum leikmönnum fyrir fyrsta tímabil liðsins í efstu deild í fjóra áratugi. Fanney Lind Thomas hefur verið ein af burðarásunum í liði Þórs frá Akureyri undanfarin tímabil en hún lék á sínum tíma með bæði Val og Fjölni og er uppalin hjá Hamri í Hveragerði. „Ég er mjög spennt að koma aftur í úrvalsdeildina eftir rúmlega ár í 1. deildinni. Ekki skemmir fyrir að ég á nokkrar mjög góðar vinkonur í liðinu. Ég tel mig geta styrkt liðið í toppbaráttunni. Ég veit að stuðningurinn í Borgarnesi er uppá 10. Ég er rosalega spennt að fara í þessa baráttu með Skallagrím, þessu liði eru allir vegir færir," sagði Fanney í viðtali við fésbókarsíðu Skallagríms. Fanney Lind Thomas var með 16,4 stig og 10,0 fráköst að meðaltali með Þórsliðinu í 1. deildinni í vetur en liðið er í toppsæti deildarinnar. Það er ljóst að brotthvarf Fanneyjar mun veikja liðið mikið. Skallagrímsliðið er eins og er í 3. sæti Domino´s deildarinnar með tveimur stigum minna en topplið Snæfells og Keflavíkur. Borgarnesliðið hefur unnið sex af níu leikjum sínum þar af alla fimm heimaleikina.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Keppinautur Antons í stóru lyfjahneyksli sem komið er á borð FBI Sport Kom Ronaldo til varnar: Er ekki í lagi að gráta? Fótbolti Ældi tvisvar þegar kærastan mætti í fyrsta sinn á leik Sport Emi Martinez bjargaði Messi þegar Argentína vann í vító Fótbolti ÍR og Grindavík sendu skýr skilaboð Íslenski boltinn Pabbinn telur að bænirnar hafi komið til bjargar Fótbolti Hetja Tyrkja í bann fyrir úlfafagnið Fótbolti Stelpurnar hans Þóris völtuðu yfir ólympíumeistarana Handbolti Óskar Hrafn ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR Fótbolti Andrea og Arnar langfyrst á Akureyri Sport Fleiri fréttir Kemba Walker hættur og verður þjálfari hjá Hornets Jontay Porter fer fyrir dóm og mun játa veðmálasvindlið KKÍ gefst upp á GameDay kerfinu Rekinn í vetur en ráðinn á ný Lakers ræður reynslubolta með Reddick LeBron James samdi við Lakers og spilar við hlið sonarins Höttur fær annan Dana til sín: „Vona að þið séuð ekki komin með ógeð af dönskum leikmönnum“ „Við gáfum Bronny ekkert, hann vann fyrir þessu“ „Ég kæmi ekki inn í þetta lið nema með það hugarfar að vinna báða titlana“ Pabbinn svekktur eftir að Klay valdi Mavericks yfir Lakers Enginn vildi tala við hann en nú fær hann rúma þrjá milljarða Gerir nýjan 44 milljarða risasamning við Boston Þrír Íslendingar í úrvalsliðum Norðurlandamótsins LeBron vill fá DeMar DeRozan til Lakers Umtalað samband við eldri konu talið hafa spillt fyrir NBA meistarar Boston Celtics til sölu Hilmar Smári semur við Stjörnuna Klay Thompson að semja við Dallas Mavericks LeBron James slítur samningi við Lakers og Chris Paul fer til Spurs „Aðdáendur liðsins munu kynnast mínum gríska anda og orku“ Paul George gerir fjögurra ára samning við Philadelphia 76ers Reese í sögubækurnar og Clark með enn einn stórleikinn Almar skoraði fjörutíu stig þegar Ísland varð Norðurlandameistari Faðir og sonur munu stýra syni og bróður Segir að Golden State banni Wiggins að spila á ÓL LeBron stoltur af syninum: „Arfleið!“ James feðgarnir sameinast í liði Los Angeles Lakers Álftanes fær mikla hetju úr Texas háskólanum Kínverski risinn sem enginn getur stöðvað Tveir Frakkar valdir fyrstir í nýliðavali NBA Sjá meira