Skrifar bók um strák sem ferðast milli brandara Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. maí 2016 09:15 "Ég vil verða bókahöfundur sem fer í þáttinn hjá Gísla Marteini eins og var í jólaþættinum hans,“ segir Dagur dæmalausi. Vísir/Ernir
Hann Dagur Ernisson, sem verður sex ára 17. maí, á heima á Egilsstöðum. Hann hefur sett tvö myndbönd inn á netið sem Dagur dæmalausi. Hvað er best við að búa á Egilsstöðum, Dagur? Það besta er að ég á hund þar. Svo fer ég stundum út í sveit, þá hjálpa ég afa að gefa kindunum, fer í traktor og klifra á heyrúllum. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að fara í leikskólann minn að leika við bestu vini mína og að gera uppfinningar. Ég er líka oft að föndra, teikna, skoða vísindabækur og gera tilraunir með alls konar. Ertu dálítill galdramaður? Já, ég hef verið að æfa mig að gera töfrabrögð en ég er líka uppfinningamaður. Hef til dæmis búið til draugavatn, kraftaverkavél og bangsasleða. Ég teikna hugmyndirnar mínar og mamma hjálpar mér að skrifa þegar ég bý til sögur."...oft að gera tilraunir með allskonar!“ segir Dagur sem hér er að grilla sykurpúða.Ef þú skrifar bók, um hvað verður hún? Ég er að skrifa bók sem er um uppfinningastrák sem býr til brandara-tímavél. Strákurinn ferðast á milli brandara og sér þá gerast. Hvað langar þig að gera í framtíðinni? Það er rosalega margt! Þegar ég byrja í skóla í haust langar mig að vera í leikriti og læra á hljóðfæri. Mig langar að læra meira um risaeðlur og líka klára bókina mína svo aðrir krakkar geti lesið hana. Ég vil verða bókahöfundur sem fer í þáttinn hjá Gísla Marteini eins og var í jólaþættinum hans, það er uppáhalds fullorðins þátturinn minn. Ég ætla líka að gera fleiri Youtube-myndbönd og sýna alls konar hugmyndir sem ég fæ og geri. Það eru svo margar Youtube-rásir á ensku, ég vil búa til íslenska krakkarás. Hægt er að sjá skemmtileg myndbönd frá Degi dæmalausa á YouTube hér fyrir neðan:
Mest lesið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Bíó og sjónvarp Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Lífið Sigmundur birtist fyrirvaralaust Lífið Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Fleiri fréttir „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Fóru líka upp á eiginkonuna fyrir besta útsýni landsins Draumkennt brúðkaup á Sardiníu Stórborgar fílingur í sögufrægu húsi Jóns Davíðs og Birgittu Ekki lengur undir sérstöku eftirliti Sjá meira