Glamour

Teyana Taylor mætti í Hvíta húsið klædd sem Angela Davis

Ritstjórn skrifar
Teyana Taylor er óhrædd við að standa með sínum réttindum.
Teyana Taylor er óhrædd við að standa með sínum réttindum. Skjáskot/Instagram
Söngkonan og dansarinn Teyana Taylor mætti í Hvíta húsið í gær klædd sem aktívistinn Angela Davis. Hún var þar stödd ásamt eiginmanni sínum til þess að taka á móti verðlaunum fyrir körfubolta lið hanns, Cleveland Cavaliers, sem sigruðu NBA deildina í byrjun sumars.

Það að mæta sem Angela Davis í Hvíta húsið er ansi stór yfirlýsing bæði í ljósi viðburða seinustu daga sem og þess sem Davis stóð fyrir. Nýkjörinn forseti Bandaríkjana, Donald Trump hefur verið sakaður um að vera rasisti og hann var staddur í hvíta húsinu sama dag. Angela Davis er ein frægasta baráttukona fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum. 

Taylor var klædd í flauels dragt í rúllukragabol undir með afró hár og stóra eyrnalokka. Á einni myndinni sem hún deildi á Instagram stóð hún fyrir framan málverk af Hillary Clinton til þess að senda sterk skilaboð til umheimsins. 

Angela Davis breytti lífi margra í Bandaríkjunum.

I am no longer accepting the things I cannot change... I'm changing the things I cannot accept -Angela Davis

A photo posted by Jimmy Neutch (@teyanataylor) on

Walked up in da White House like...#WhoGoneStopUs

A photo posted by Jimmy Neutch (@teyanataylor) on






×