Viðskipti innlent

Átta þúsund ný störf á næstu tveimur árum

Höskuldur Kári Schram skrifar
Búist er við því að atvinnuleysi muni dragast saman um þriðjung á næstu tveimur árum og allt að átta þúsund ný störf verði til samkvæmt nýútkominni skýrslu Vinnumálastofnunar. Í flestum tilvikum er um að ræða ófaglærð störf en spáð er minni aukningu á störfum fyrir háskólamenntaða.

Horfur á vinnumarkaði til næstu tveggja ára eru almennt jákvæðar samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar. Stofnunin spáir því að atvinnuleysi haldi áfram að minnka. Það var 3 prósent á síðasta ári en búist er við því að það verði komið niður í 2 prósent árið 2018.

„Það er komin í gang ákveðin uppsveifla í efnahagslífinu. Hún hefur birst mjög sterkt í ferðaþjónustunni núna síðustu ár og í byggingariðnaði að hluta til. Við gerum ráð fyrir því að þetta fari að dreifast á fleiri atvinnugreinar á næstu árum,“ segir Karl Gíslason, einn skýrsluhöfunda.

Búist er við því að erlendum ríkisborgurum á vinnumarkaði muni fölgja um tvö þúsund á næstu árum.

„Það er alveg ljóst að í dag er orðinn verulegur skortur á fólki til starfa í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Það má búast við að þar verði til nokkur þúsund ný störf á næstu árum. Að stórum hluta til verða þau væntanlega mönnum með innfluttu vinnuafli,“ segir Karl.

Hann segir um margskonar störf að ræða.

„Mikið til eru þetta þó störf fyrir fólk með litla menntun. Þjónustustörf í ferðaþjónustu, verkamannastörf í byggingariðnaði en líka störf fyrir iðnaðarmenn að einhverju leyti. Það er skortur á iðnaðarmönnum líka, “ segir Karl.

Í heild er gert er ráð fyrir að átta þúsund ný störf verði til á næstu árum samkvæmt skýrslunni. Minni aukning er þó í störfum fyrir háskólamenntað fólk.

„Það virðist vera að meginþunginn í fjölgun starfa sé núna í störfum sem ekki krefjast háskólamenntunar. Það er þó töluvert um fjölgun fyrir háskólamenntaða líka. Innan ferðaþjónustu og í greinum sem tengjast ferðaþjónustu og byggingariðnaði. En svona hlutfallslega er fjölgun þeirra hægari,“ segir Karl.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×