Aron Pálmarsson, stórskytta íslenska karlalandsliðsins í handbolta, getur ekki beðið eftir því að snúa aftur á sinn gamla heimavöll í kvöld.
Aron spilar sinn 100. landsleik með Íslandi á móti Portúgal klukkan 19.30 í Kaplakrika, húsinu sem hans ólst upp í.
Sjá einnig: Svona komast handboltastrákarnir okkar á ÓL í Ríó
„Það gladdi mig mikið að landsleikirnir sem spilaðir verða hér heima í undirbúningi okkar fyrir EM verða á mínum heimavelli í Kaplakrika,“ segir Aron í nýárskveðju til FH-inga.
„Kaplakriki á sérstakan stað í hjarta mínu enda mitt annað heimili í 18 ár og ég hef ekki spilað leik þar síðan ég flutti til Kiel fyrir 7 árum síðan.“
Aron vonast til að fá stútfullt hús af FH-ingum til að styðja sig og íslenska landsliðið í síðasta heimaleik A-liðsins fyrir Evrópumótið í Póllandi.
„Ég mun gefa mér góðan tíma eftir leik til að hitta unga og upprennandi FH-inga og gefa eiginhandaráritanir. Ég er fullur tilhlökkunar og mun gera mitt allra besta til að opna handboltaárið fyrir FH-ingum með góðri skemmtun og skjóta handboltaárinu í Krikanum í gang,“ segir Aron Pálmarsson.
Aron mun gefa sér góðan tíma eftir leik í kvöld til að hitta unga FH-inga
Tengdar fréttir
Snorri Steinn: Veit ekki hvort að ég eigi að kalla þetta lögreglumál
Franska lögreglan gerði enga tilraun til að ná innbrotsþjófunum sem brutust inn til Snorra Steins.
Alexander: Óli hefur komið inn með skemmtilega hluti fyrir mótið
Alexander Petersson verður í takmörkuðu hlutverki hjá íslenska landsliðinu á EM í Póllandi. Þessi mikli harðjaxl mun bíta á jaxlinn og gera það sem hann getur til þess að hjálpa liðinu.
Stefán Rafn: Ég er betri en Bjarki þannig að ég hef engar áhyggjur
Meiri líkur eru en minni að Stefán Rafn Sigurmannsson verði áfram hjá Rhein-Neckar Löwen og mögulega í stærra hlutverki.
Alexander spilar bara fimmtán mínútur í leik á EM
Alexander Petersson hefur ekki verið verkjalaus síðan á Evrópumótinu í Austurríki 2010.