Afnemum einkaleyfi RÚV á menningarhlutverki þjóðarinnar Sævar Freyr Þráinsson skrifar 4. janúar 2016 07:00 Starfsemi RÚV skekkir verulega samkeppni á fjölmiðlamarkaði hér á landi. Flest einkarekin fjölmiðlafyrirtæki berjast í bökkum undir ægivaldi RÚV. RÚV fær árlegt forskot á aðra miðla að fjárhæð um 3,6 milljarðar í útvarpsgjaldi. Á auglýsingamarkaði tekur RÚV til sín u.þ.b. 1,8 milljarða. Þrátt fyrir þetta forskot fær RÚV ár eftir ár aukafjárframlög í ýmsu formi. Á sama tíma og RÚV er veitt skotleyfi á auglýsingamarkaði til að murka lífið úr öðrum fjölmiðlum hefur skattbyrði einkamiðlanna verið aukin með hækkun virðisaukaskatts sem nemur um 200 m.kr. fyrir 365 miðla á þessu ári, sem er merkilegt fyrir þær sakir að það er nálægt sérframlagi sem RÚV fékk í jólagjöf til að framleiða innlent efni á árinu 2016. Nú vantar framtíðarsýn. Hvernig væri að láta Rás 2 í hendur dugmikilla starfsmanna? Það myndi auka samkeppni og draga úr afskiptum ríkisins á samkeppnismarkaði. RÚV á ekki að kosta meira en 1,5 milljarða á ári í stað 5,7 milljarða. Ég fullyrði að menningarhlutverki stofnunarinnar væri vel borgið með þeirri fjárhæð, m.a. til að halda uppi öflugri og vandaðri dagskrá á Rás 1, eins og verið hefur, sem óumdeilanlega er flaggskip RÚV. RÚV sem ríkisfyrirtæki á ekki að vera á auglýsingamarkaði. RÚV á ekki að hafa einkaleyfi á menningarhlutverki þjóðarinnar, þó vissulega eigi RÚV að sinna því. Mín tillaga er sú að í stað þess að veita öllum þessum fjármunum til RÚV verði stofnaður sjóður, sem fengi til ráðstöfunar 4 milljarða á ári. Hlutverk hans væri að styðja við tónlist, sjónvarp, kvikmyndagerð, leikhús og aðra menningartengda starfsemi, sem myndi einnig nýtast í ljósvakamiðlum landsins. Allir sitji við sama borð og litróf íslenskrar menningar yrði fjölbreyttara. Margfeldisáhrif slíkrar stefnumörkunar yrðu gífurleg. Það myndi stuðla að bættum starfsskilyrðum íslenskra listamanna, fjölbreyttari afþreyingu og nýjar gjaldeyristekjur myndu verða til. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 19.10.24 Halldór Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sögur ísraelska hermannsins Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fullveldi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun „Hver sagði þér að heimurinn væri réttlátur?“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ert þú ég eða verð ég þú Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Ákall um annars konar hagkerfi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Lögbrot íslenskrar stjórnsýslu og dómstóla Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Háskóli Íslands styður þjóðarmorð Elí Hörpu og Önundarbur skrifar Skoðun Stjórnvöld bregðist við eggjaskorti með afnámi tolla Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Í hvernig samfélagi viljum við búa í? Ólafur H. Ólafsson skrifar Skoðun Endurhugsum íslenskt skólakerfi: Ný sýn á nám og kennslu Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Þankar um framtíð landsins okkar Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Er Landsvirkjun til sölu? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar pólitík hindrar framför Hjörtur Sveinsson skrifar Skoðun Nú á lýðræðið næsta leik Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi? Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Dagur í grunnskóla Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Áskorun - Þingmenn, sýnið kjósendum stórhug skrifar Skoðun TikTok, upplýsingaóreiða og stjórnvöld Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Taktu þátt í lýðræðinu með okkur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Sjá meira
Starfsemi RÚV skekkir verulega samkeppni á fjölmiðlamarkaði hér á landi. Flest einkarekin fjölmiðlafyrirtæki berjast í bökkum undir ægivaldi RÚV. RÚV fær árlegt forskot á aðra miðla að fjárhæð um 3,6 milljarðar í útvarpsgjaldi. Á auglýsingamarkaði tekur RÚV til sín u.þ.b. 1,8 milljarða. Þrátt fyrir þetta forskot fær RÚV ár eftir ár aukafjárframlög í ýmsu formi. Á sama tíma og RÚV er veitt skotleyfi á auglýsingamarkaði til að murka lífið úr öðrum fjölmiðlum hefur skattbyrði einkamiðlanna verið aukin með hækkun virðisaukaskatts sem nemur um 200 m.kr. fyrir 365 miðla á þessu ári, sem er merkilegt fyrir þær sakir að það er nálægt sérframlagi sem RÚV fékk í jólagjöf til að framleiða innlent efni á árinu 2016. Nú vantar framtíðarsýn. Hvernig væri að láta Rás 2 í hendur dugmikilla starfsmanna? Það myndi auka samkeppni og draga úr afskiptum ríkisins á samkeppnismarkaði. RÚV á ekki að kosta meira en 1,5 milljarða á ári í stað 5,7 milljarða. Ég fullyrði að menningarhlutverki stofnunarinnar væri vel borgið með þeirri fjárhæð, m.a. til að halda uppi öflugri og vandaðri dagskrá á Rás 1, eins og verið hefur, sem óumdeilanlega er flaggskip RÚV. RÚV sem ríkisfyrirtæki á ekki að vera á auglýsingamarkaði. RÚV á ekki að hafa einkaleyfi á menningarhlutverki þjóðarinnar, þó vissulega eigi RÚV að sinna því. Mín tillaga er sú að í stað þess að veita öllum þessum fjármunum til RÚV verði stofnaður sjóður, sem fengi til ráðstöfunar 4 milljarða á ári. Hlutverk hans væri að styðja við tónlist, sjónvarp, kvikmyndagerð, leikhús og aðra menningartengda starfsemi, sem myndi einnig nýtast í ljósvakamiðlum landsins. Allir sitji við sama borð og litróf íslenskrar menningar yrði fjölbreyttara. Margfeldisáhrif slíkrar stefnumörkunar yrðu gífurleg. Það myndi stuðla að bættum starfsskilyrðum íslenskra listamanna, fjölbreyttari afþreyingu og nýjar gjaldeyristekjur myndu verða til.
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun
Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar
Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun