Katrín nú ein af „Bellunum" | Samdi við nýliðana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2016 13:45 Katrín Ómarsdóttir og Becky Easton fagna marki með Liverpool en þær eru báða komnar til Doncaster Rovers. Vísir/Getty
Íslenska landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir mun spila áfram í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta en hún hefur samið við nýliða Doncaster Rovers. Katrín vann tvo meistaratitla á þremur árum með Liverpool en fékk ekki nýjan samning hjá liðinu og hefur síðan verið að leita sér að nýju félagi. Samingurinn við Doncaster Rovers er staðfestur á heimasíðu félagsins en þar er einnig sagt frá því að nokkur lið höfðu áhuga á því að semja við Katrínu. Doncaster Rovers vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni með því að ná öðru sæti í b-deildinni en liðið fer upp ásamt Reading. Það er mikill hugur í félaginu og liðið hefur verið að styrkja sig með öflugum leikmönnum að undanförnu. Doncaster Rovers Belles Ladies Football Club gengur vanalega undir nafninu Doncaster Belles eða fegurðardísirnar frá Doncaster. Karín er því orðin ein af „Bellunum". Katrín er ekki eini leikmaður Liverpool sem fer yfir til Doncaster Rovers því enska félagið samdi einnig við hina 41 árs gömlu Becky Easton, sem er fyrrum leikmaður Doncaster Rovers. „Katrín kemur með gæði á miðju vallarins og með reynslu úr úrvalsdeildinni. Það mun skipta okkur miklu máli á komandi tímabili," sagði Glen Harris, þjálfari Doncaster Rovers, á heimasíðunni. „Katrín hefur frábæra tækni og við horfum til þess að hún geti haft góða áhrif á leik liðsins. Það að semja við svona öflugan leikmann eins og Katrínu sýnir vel áhuga okkar á því að stimpla okkur inn í ensku úrvalsdeildina," sagði Harris. Katrín Ómarsdóttir er 28 ára gömul og hefur spilað sem atvinnumaður frá árinu 2010 þegar hún yfirgaf KR og samdi við Kristianstad í Svíþjóð. Katrín hefur spilað 64 landsleiki fyrir Ísland og skoraði í þeim 10 mörk en hún hefur ekki spilað fyrir landsliðið síðan í maí 2014.
Enski boltinn Tengdar fréttir Katrín fer frá Liverpool Varð tvívegis Englandsmeistari á þriggja ára dvöl sinni í Bítlaborginni. 24. nóvember 2015 13:10 Katrín: Auðveld ákvörðun því þjálfarinn ætlaði að setja mig á bekkinn Katrín Ómarsdóttir er búin að finna sér nýtt félagslið og langar meira en allt aftur í landsliðið. 24. nóvember 2015 16:45 Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira
Katrín fer frá Liverpool Varð tvívegis Englandsmeistari á þriggja ára dvöl sinni í Bítlaborginni. 24. nóvember 2015 13:10
Katrín: Auðveld ákvörðun því þjálfarinn ætlaði að setja mig á bekkinn Katrín Ómarsdóttir er búin að finna sér nýtt félagslið og langar meira en allt aftur í landsliðið. 24. nóvember 2015 16:45