Bíó og sjónvarp

Fagna fáránleikanum með plastskeiðakasti

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Þau Gunnar Tómas, Rakel og Björgvin Franz verða vafalaust kræf í plastskeiðakastinu.
Þau Gunnar Tómas, Rakel og Björgvin Franz verða vafalaust kræf í plastskeiðakastinu. Vísir/AntonBrink
Myndin er alveg stórkostleg. Hún er svo léleg á svo ofsalega flókinn máta, maður þarf eiginlega að sjá hana aftur og aftur, þannig uppgötvar maður snilld sem fór fram hjá manni við síðasta áhorf,“ segir Gunnar Tómas Kristófersson, kvikmyndafræðingur og kennari í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands.

Gunnar Tómas mun ásamt Björgvin Franz Gíslasyni og Rakel Ósk Þorgeirsdóttur standa fyrir svokallaðri þátttökusýningu á myndinni The Room sem hefur einna helst unnið sér það til frægar að skipa sér í flokk með lélegustu kvikmyndum sem gerðar hafa verið. „Þátttökusýning er í sjálfu sér það sem áhorfendur kjósa að segja og gera í kvikmyndasalnum,“ segir Gunnar Tómas um fyrirbærið en ekki hefur verið mikið um svokallaðar þátttökusýningar hér á landi.

Rík hefð hefur skapast í kringum þátttökusýningar á kvikmyndinni The Room síðan hún kom út árið 2003. Sem dæmi um það sem fram fer á þátttökusýningu er að áhorfendur svara karakterum í myndinni, eiga við þá samtöl og eru í einhvers konar gagnvirkum samskiptum við myndina. Í kringum The Room hefur skapast fjöldinn allur af hefðum og segir Gunnar Tómas þremenningana ætla að notast við þægilegustu og þekktustu þátttökuhefðirnar og verða þær kynntar fyrir áhorfendum áður en leikar hefjast.

Tommy Wiseau ber gjarnan tvenn belti.Vísir/Getty
Óþægilegur og margslunginn

„Meðal annars verður skeiðum og amerískum fótboltum kastað,“ segir Gunnar Tómas en ástæður skeiðakastsins má rekja til þess þegar verið var að setja sviðsmynd kvikmyndarinnar upp. Tommy Wiseau, framleiðandi, handritshöfundur, leikstjóri og aðalleikari myndarinnar er að mörgu leyti sérstæður karakter og hafa margar af hefðunum spunnist út frá honum og hans sérkennilegheitum.

„Hann er rosalega skrítinn og óþægilegur á margslunginn hátt,“ segir Gunnar Tómas og skellir upp úr þegar hann er beðinn um að gera betri grein fyrir Wiseau. 

„Hann var með puttana í öllu og réð öllu sem var gert. Settið var dálítið fátæklegt og hann sendi einhverja sem sáu um leikmyndina út og lét þá kaupa alls konar leikmuni. Meðal annars ramma og í þeim voru svona „stock-photos“ og í einum rammanum var mynd af skeið. Þegar leikmyndahönnuðirnir vildu skipta myndinni út neitaði hann því.“ Því er mynd af skeið í einum ramma í setti myndarinnar og í kringum það hefur ein þátttökuhefðin skapast.

„Alltaf þegar hún kemur í mynd þá kasta áhorfendur plastskeiðum í salinn. Þetta er svona til þess að fagna fáránleikanum. Það er ekki hægt að útskýra neitt í þessari mynd, bara fagna því að hún hafi verið gerð,“ segir Gunnar Tómas hlæjandi og það er auðheyrt að hann hefur gaman af Tommy Wiseau.

Ástæður boltakastsins eiga sér einnig sögu úr myndinni. „Karakterarnir í myndinni fara oft út að spila amerískan fótbolta og eru bara eitthvað svona að kasta honum á milli sín. Þegar þau atriði koma þá standa áhorfendur upp og kasta fótbolta á milli sín en við verðum auðvitað að fara varlega í það svo enginn slasist,“ segir hann glaður í bragði.

Gott að horfa aftur og aftur


Gunnar Tómas mælir með því að þeir sem hafa áhuga á að skella sér á þátttökusýninguna renni að minnsta kosti einu sinni í gegnum The Room svo hægt sé að taka sem mestan og bestan þátt í húllumhæinu. „Það er alltaf þægilegra, þetta er mynd sem bara batnar eftir því sem þú sérð hana oftar. Hún er það óskiljanleg og flókin að það er gott að horfa á hana aftur og aftur,“ segir hann og bætir við að það sé vel séð að fólk kjósi að mæta í búningi í takt við karaktera myndarinnar.

Sjálfur hefur Gunnar Tómas séð myndina talsvert oft. „Bara á síðustu mánuðum er ég búinn að horfa á hana held ég fimm sinnum.“ Hann þvertekur hins vegar fyrir það að hann sé búinn að fá nóg af The Room, við hvert áhorf komi eitthvað nýtt upp á yfirborðið.

Þátttökusýningin fer fram í Bíói Paradís þann 22. janúar næstkomandi klukkan 20.00. Miða má nálgast á Tix.is.



Hér má svo sjá myndbrot úr The Room en sögur herma að þurft hafi 32 tökur af fyrsta atriðinu þar sem Tommy Wiseau gleymdi alltaf línunum sínum:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×