Bíó og sjónvarp

Tökur á áttundu Star Wars-myndinni sagðar fara fram á Íslandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Þeir John Boyega og Oscar Isaac snúa aftur í áttundu Stjörnustríðsmyndinni.
Þeir John Boyega og Oscar Isaac snúa aftur í áttundu Stjörnustríðsmyndinni. Vísir/IMDb
Tökur á áttundu Stjörnustríðsmyndinni munu fara fram hér á landi. Þetta er fullyrt á vefnum Vulture þar sem óútkomnar Star Wars-myndir eru til umfjöllunar. Tökur vegna sjöundu myndarinnar, The Force Awakens, fóru fram hér á landi og þá var einnig myndin Star Wars: Rogue One tekin upp á Íslandi síðasta haust.

Sú mynd gerist í raun áður en gömlu myndirnar komu út (Á milli Episode III og Episode IV) og fjallar um hóp uppreisnarmanna sem stela teikningunum að Helstirninu. Samkvæmt Vulture snúa lang flestir þeirra sem léku í The Force Awakens aftur í áttundu myndinni, þar á meðal Daisy Ridley, John Boyega, Oscar Isaac, Gwendoline Christie, Mark Hamill,  Carrie Fisher og Adam Driver. Þá hefur Benicio Del Toro verið staðfestur í hlutverki illmennis í þessari mynd.

Ásamt því að vera tekin upp á Íslandi fara tökur einnig fram á eyjunni Skellig Michael undir suðurströnd Írlands og í Pinwood-myndverinu í Lundúnum.


Tengdar fréttir

Nokkrir koma til greina sem ungur Han Solo

Disney og Lucasfilm eru sagðir vera með um tólf unga leikara í huga fyrir kvikmynd um yngri ár smyglarans, sem fór Kessel leiðina á minna en tólf parsecum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.