Sjáðu heimildaþáttinn um Dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2016 13:45 Mynd/Skjáskot
Dagur Sigurðsson er umfjöllunarefnið í áhugaverðum heimildaþætti sem var sýndur á þýsku stöðinni ARD um helgina. Þar er fjallað um uppganga þýska landsliðsins í handbolta sem hefur náð góðum árangri eftir að Dagur tók við en liðið hafði áður verið í nokkurri lægð. Þrátt fyrir mikil meiðsli í leikmannahópi Dags hefur hann náð að setja saman spennandi lið eins og sást í æfingaleikjunum gegn Íslandi um helgina. „Ég ætla að veðja á að við séum með ungt og hungrað lið. Sem er mjög spennandi. Í dag tel ég að það séu ekki mörg lið í Evrópu sem eiga meira spennandi landslið en okkar,“ sagði Dagur í myndinni. Dagur ræðir einnig lífið utan handboltans og fyrirtækin sem hann hefur komið að í gegnum tíðina. „Ég opnaði fyrsta kaffihúsið með bróður mínum þegar ég var átján ára. Síðan þá hafa fyrirtækin sjálfsagt verið um tíu talsins,“ sagði Dagur sem er einn eiganda Kex Hostel. Þá er einnig rætt við bræður hans, Lárus og Bjarka, sem segja hann hugmyndaríkan og ástríðufullan fyrir öllum þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur. Í myndinni sést hvaða brögðum Dagur beitir til að byggja upp stemninguna í sínu liði, hvort sem það er að fara með liðið í miðnæturhlaup í Berlín eða á boxæfingar.Þáttinn má sjá hér.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Allsber kona truflaði úrslitaleikinn Sport Bellamy heldur ekki vatni yfir Orra: „Verður heimsþekktur“ Fótbolti Þegar Walesverjar reyndu að gera lítið úr Íslendingum með apagrímum Fótbolti Ísland neyðist í fyrsta sinn til að spila heimaleik erlendis Fótbolti Paul hló að tilboði heimsmeistarans en skoðar málið Sport Ronaldo segir að næsti gestur hans muni setja Internetið á hliðina Fótbolti Þjálfari Noregs rakar inn milljónum Fótbolti Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Handbolti Höttur á Egilsstöðum eða „hawk tuah“? Körfubolti Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Enski boltinn Fleiri fréttir Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Framarar flugu í átta liða úrslitin á gamla heimavellinum Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Ágúst tekur við af Óskari hjá Val KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum Lærisveinar Rúnars með góðan sigur Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Öruggt hjá liði Díönu Daggar og Andreu í Evrópuslag Íslendingaliðanna Góður endasprettur tryggði Haukum fína stöðu Pick Szeged hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Þorsteinn Leó markahæstur og stórsigur hjá strákunum hans Gumma Frækinn sigur Vals í Kristianstad Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Sjá meira