Í tilkynningu frá Visit Reykjanes segir að Reykjanes UNESCO Global Geopark og Reykjanesbær hafi undanfarin ár unnið að gerð deiliskipulags fyrir svæðið. Skipulagið var samþykkt í janúar 2016 og gerir ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á hverfisvernduðu svæði.
„Leiðarljós við mat á tillögum verður hve mikil jákvæð áhrif ætla má að tillagan hafi fyrir umhverfi, náttúru og mannlíf á svæðinu. Auk þess sem litið verður til fjárhagslegs og faglegs styrks til þess að ljúka uppbyggingu svæðisins.
Reykjanesviti og nágrenni hafa mikið aðdráttarafl. Áætlað er að um 200.000 gestir hafi heimsótt svæðið á árinu 2015. Með bættu aðgengi ásamt skipulagðri og markvissri uppbyggingu þar og í næsta nágrenni getur svæðið tekið við mun fleiri gestum.
Í nágrenni Reykjanesvita er fyrirhuguð mikil uppbygging í ferðaþjónustu en fyrir eru staðir sem njóta mikilla vinsælda meðal ferðamanna s.s. Brú milli heimsálfa, Gunnuhver og Brimketill,“ segir í tilkynningunni.

Aðilum sem tilkynna áhuga verður greint frá vali þeirra sem falið verður að útfæra hugmyndir nánar eigi síðar en 10. mars 2016.