Bíó og sjónvarp

Scully boðið helmingi lægri laun en Mulder

Atli Ísleifsson skrifar
Mulder og Scully snúa aftur í þessum mánuði. The truth is out there!
Mulder og Scully snúa aftur í þessum mánuði. The truth is out there! Vísir/Getty
Bresk-bandaríska leikkonan Gillian Anderseon segist í upphafi einungis hafa verið boðið helming af launum mótleikara síns, David Duchovny, við gerð hinna nýju X-files þátta.

Ný sex þátta sería um þau Dana Scully og Fox Mulder, verður frumsýnd í Bandaríkjunum á sunnudaginn.

Í samtali við Daily Beast segir Anderson að hið sama hafa verið uppi á teningnum þegar hún tók að sér hlutverk Scully á tíunda áratugnum. Hafi hún sótt hart að því að fá greitt sömu laun og Duchovny.

„Ég er undrandi að fleiri blaðamenn hafi ekki tekið þetta upp, þar sem þetta er hið sanna í málinu. Síðustu ár hefur fólk ekki sagst skilja hvernig þetta hafi gerst og spurt hvernig mér liði með þetta og sagt þetta vera algert rugl. Ég hef alltaf sagt þetta hafi verið þá og nú væru nýir tímar. En svo gerist þetta aftur! Ég er orðlaus. Þetta er sorglegt.“

Að sögn Hollywood Reporter fengu þau Anderson og Duchovny að lokum greitt sömu upphæð fyrir nýju þættina.

Þættirnir nutu gífurlega vinsælir á árum áður, en upprunalegu þættirnir voru í sýningu frá 1993 til 2002 og urðu fleiri en 200. Þar að auki hafa verið gerðar tvær kvikmyndir. The X-Files sem gefin var út 1998 og The X-Files: I Want to Believe var gefin út árið 2008.

Nýju þættirnir gerast sjö til átta árum seinna en síðasta myndin og er samband þeirra Mulder og Scully orðið stirt. Fyrsti og síðasti þátturinn mun snúa að þeirri sögu sem gömlu þættirnir snerust um, en inn á milli verða þættir sem standa á eigin fótum.

Fyrsti þáttur verður frumsýndur á Stöð 2 31. janúar næstkomandi. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×