Bíó og sjónvarp

Sjáðu nýjustu stikluna úr Suicide Squad: Jókerinn getur ekki beðið eftir að sýna dótið sitt

Birgir Olgeirsson skrifar
Jared Leto sem Jókerinn.
Jared Leto sem Jókerinn.
Þá er nýjasta stiklan komin fram úr væntanlegu kvikmyndinni The Suicide Squad. Í henni fá áhorfendur að sjá örlítið meira af því sem hafði verið gefið til kynna í fyrri stiklunni, sem þýðir mun meiri hasar og er notast við eitt vinsælasta lag allra tíma, Bohemian Rhapsody með bresku sveitinni Queen.

Við fáum einnig að sjá töluvert meira af Jókernum sem Jared Leto leikur í þessara mynd en hann segist meðal annars ekki geta beðið eftir að fá að sýna leikföngin sín. Myndin verður frumsýnd hér á landi 3. ágúst næstkomandi.  


Tengdar fréttir

Suicide Squad í fullum skrúða

David Ayer, leikstjóri Suicide Squad myndarinnar, hefur birt mynd af leikurum myndarinnar í búningum sínum.

Sjáðu Jared Leto sem Jókerinn

Kvikmyndin Suicide Squad verður frumsýnd á næsta ári en Suicide Squad er lið af illmennum úr myndasögum DC Comics en Jókerinn, kafteinn Boomerang og Deadshot eru meðal annars í liðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.