Samherji framúrskarandi fyrirtæki ársins Jóhann Óli Eiðsson skrifar 3. febrúar 2016 20:42 Hagar, LS Retail og Kjarnepli hlutu sérstakar viðurkenningar. vísir/anton brink
Líkt og undanfarin fjögur ár er Samherji í efsta sæti í úttekt Creditinfo á framúrskarandi fyrirtækjum landsins. Þetta er fimmta árið í röð sem Samherji er í efsta sæti listans. Creditinfo veitti framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningar í Hörpu í dag fyrir rekstrarárið 2014. Að þessu sinni fengu 682 fyrirtæki viðurkenningu eða um tvö prósent fyrirtækja á landinu. Frá því Creditinfo hóf að taka saman lista yfir framúrskarandi fyrirtæki, en það var fyrst gert árið 2010, hefur þeim fjölgað gífurlega. Til að mynda eru þau tæplega fjórfalt fleiri nú en þá. Framúrskarandi fyrirtækin eiga það sameiginlegt að sýna stöðugleika í reksti og teljast líkleg til að efla hag hluthafa og fjárfesta. „Vaxandi fjöldi fyrirtækja á lista Creditinfo sýnir að við Íslendingar erum að rétta úr kútnum,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra við afhendinguna. Hann afhenti þremur fyrirtækjum, Kjarnepli, LS Retail og Högum, sérstök verðlaun. Hagar fengu viðurkenningu fyrir að vera sá nýliði sem náði hæst á listanum, LS Retail fyrir að vera hástökkvari ársins en fyrirtækið fór upp um 387 sæti. Kjarnepli fékk viðurkenningu fyrir að vera yngsta fyrirtækið á listanum en fyrirtækið var stofnað í september 2012. „Það er mjög jákvætt fyrir atvinnulífið að fyrirtækjum fjölgi á listanum, í ár bætast við rúmlega 100 ný fyrirtæki. Þessi fyrirtæki byggja á sterkum stoðum og eru ekki líkleg til að skapa kostnað fyrir samfélagið. Það felast því mikil verðmæti í þessum fyrirtækjum fyrir samfélagið í heild sinni. Það er ánægjulegt að sjá að viðurkenningin sé búin að öðlast sess í atvinnulífinu,“sagði Brynja Baldursdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira