Manchester United er á toppnum á einum lista í tölfræði ensku deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2016 16:00 Daley Blind og Juan Mata fagna marki með liðsfélögum sínum í Manchester United. Vísir/Getty
Norska Dagbladet hefur í samvinnu við Opta-tölfræðiþjónustuna reiknað út hvaða lið eru á toppnum í ensku úrvalsdeildinni í nokkrum af áhugaverðum tölfræðiþáttum. 23 af 38 umferðum eru að baki og sú 24. fer fram í kvöld og á morgun. Leicester City er með flest stig (47), Manchester City hefur skorað flest mörk (45) og Tottenham hefur fengið á sig fæst mörk (18). Það eru þó önnur félög á toppi annarra tölfræðilista eftir þessar 23 umferðir. Hér á eftir fer yfirlit yfir samantekt norska Dagbladet.Manchester United er það lið sem hefur verið mest með boltann í leikjum sínum en liðsmenn United hafa haldið boltanum innan síns liðs í 56,3 prósent leiktímans.Arsenal er bæði það lið sem hefur gefið flestar sendingar að meðaltali í leik (428,8) og Arsenal er líka það lið sem hefur átt hæsta hlutfall heppnaða sendinga eða 84,2 prósent.Watford er það lið sem reyndir flestar langar sendingar fram völlinn eða 79,6 að meðaltali í leik. Aðeins 41 prósent þeirra (32,7 í leik) finn þó samherja.Aston Villa hefur fengið fæst stig í deildinni en liðið er samt á toppnum yfir flest unnin skallaeinvígi eða 23,1 að meðaltali í leik. Þar munar mikið um hinn 193 sentímetra háa Rudy Gestede sem hefur unnið 6,2 skallaeinvígi í leik.West Bromwich Albion er grófasta lið deildarinnar en liðið hefur fengið 43 gul spjöld og þrjú rauð spjöld á leiktíðinni. Liðsfélagarnir Claudio Yacob og Chris Brunt hafa fengið saman þrettán gul spjöld. Jürgen Klopp lætur sína menn í Liverpool hamast inn á vellinum og Liverpool er bæði það lið sem hleypur mest og tæklar mest í deildinni. Leikmenn Liverpool hafa náð 23,1 tæklingu að meðaltali í leik. Topplið Leicester City er aftur á móti það lið þar sem varnarmennirnir verja flest skot, hreinsa oftast frá og vinna oftast boltann. Samanlagt kallast þetta varnar-inngrip og þar er enginn afkastameiri en N'Golo Kante með 11,1 varnarinngrip að meðaltali í leik.Manchester City er aftur á móti mest skapandi lið deildarinnar því ekkert lið gefur fleiri lykilsendingar (13,7) sem eru sendingar sem skapa skotfæri eða skýtur oftar að marki (17,5 skot í leik).
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira