Fíkniefni upp á milljarð króna: Deila um niðursuðudósir og húsbíllinn verður fluttur til Reykjavíkur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. febrúar 2016 13:30 Frá tollaeftirliti við Seyðisfjörð. Vísir
Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn hollensku pari á fimmtugsaldri sem ákært er fyrir stórfellt fíkniefnasmygl til landsins síðastliðið haust hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Fólkið var stöðvað við komuna til landsins með Norrænu á Seyðisfirði þann 8. september með 209 þúsund e-töflur og tíu kíló af MDMA mulningi til viðbótar. Má áætla að hægt sé að framleiða um 80 þúsund e-töflur úr mulningnum svo í heildina er um að ræða tæplega 300 þúsund e-töflur. Götuvirði efnanna er hátt í milljarður íslenskra króna. Auk þess fundust 35 grömm af amfetamíni í húsbílnum sem fólkið flutti til landsins. Maðurinn játar sök en konan hefur frá upphafi neitað að hafa vitað af tilgangi ferðarinnar. Hún hafi einfaldlega talið sig vera í ferðalagi með manni sínum. Tekur maðurinn undir með konu sinni. Ákæruvaldið telur hins vegar frásögn þeirra ótrúverðuga og telur ekki ganga upp að hún hafi ekki verið meðvituð um hvaða tilgangi förin til Íslands átti að þjóna. Þá hefur komið fram að þau hafi verið í fjárhagserfiðleikum og um leið vaknað upp sú spurning hvernig ferðin var fjármögnuð.Maðurinn í grænni peysu og konan í svartri. Á milli þeirra situr túlkur sem þýðir af hollensku yfir á íslensku og öfugt. Myndin var tekin eftir að aðalmeðferð lauk í morgun.VísirTóku á sig krók á leiðinni För parsins hófst í Belgíu en þaðan óku þau húsbílnum um Holland og Þýskaland, þaðan til Danmerkur þar sem þau tóku Norrænu til Íslands. Saksóknari setur spurningamerki við krók sem parið tók á sig á leiðinni frá Belgíu til Danmerkur. Þau hafi gist á leiðinni þangað og telur saksóknari skrýtið að konan hafi ekki velt fyrir sér hvers vegna ekki var ekið rakleiðis til Danmerkur fyrst Ísland var áfangastaður þeirra. Fíkniefnin voru falin í varadekki og tveimur gaskútum en einnig í fjórtán niðurstuðudósum. Þær fundust í skáp ásamt öðrum matvörum í húsbílnum. Setur saksóknari spurningamerki við frásögn mannsins hvernig hann hélt niðursuðudósunum leyndum fyrir konu sinni. Telur saksóknari manninn margsaga hvað þetta varðar. Maðurinn segir að þau hafi keypt niðursuðudósir ásamt annarri matvöru áður en haldið var til Íslands. Hann hafi svo skipt þeim út fyrir þær sem innihéldu fíkniefnin og komið þeim fyrir ásamt annarri matvöru í skáp í húsbílnum. Aðspurður hvar hann hefði falið niðursuðudósirnar í bílnum hafði maðurinn við aðalmeðferð vísað til pláss við bílstjórahurðina og einnig til pláss undir farþegasætinu.Kolbrún Benediktsdóttir flytur málið fyrir hönd ríkissaksóknara.Vísir/ValliHvorugt plássið nógu stórt Saksóknari tók skýrslu af rannsóknarlögreglumanni á Austfjörðum í morgun. Honum hafði verið fengið það hlutverk á dögunum að prófa að koma fjórtán niðursuðudósum af sömu stærð fyrir á þeim stöðum sem maðurinn hafði sagst hafa falið dósirnar. Rannsóknarlögreglumaðurinn sagði fyrir dómi að honum hefði reynst ómögulegt að koma þeim fyrir á fyrrnefndum stöðum. Reyndar hefði hann ekki einu sinni getað komið einni dós fyrir í plássinu við bílstjórahurðina. Hvorugt plássið væri nálægt því nógu stórt til að koma dósunum þar fyrir. Aðspurður sagði maðurinn fyrir dómi að hans orð hefðu greinilega verið misskilin í dómssal við fyrri aðalmeðferð. Túlkur sér um að snara framburði mannsins af hollensku yfir á íslensku öllum viðstöddum til upplýsingar. Sagði hann nú að hann hefði geymt dósirnar í poka og undir teppi við hlið sætisins. Saksóknari spurði hvort hann væri ekki einfaldlega að breyta framburði sínum núna þegar í ljós kæmi að fyrri frásögn hans gengi ekki upp en hann neitaði því. Ráðfærði hann sig endurtekið við verjanda sinn á þessu stigi og fékk á einum tímapunkti að fara afsíðis til ráðagerða. Þá virtist hann ekki viðbúinn spurningu saksóknara á einum tímapunkti og óskaði eftir því að verjandi hans fengi að svara fyrir hann. Saksóknari mótmælti því í hástert og þurfti maðurinn sjálfur að svara spurningum. Konan var spurð að því hvort hún hefði séð dósirnar í bílnum. Hún svaraði því neitandi.Efnin sem fundust í húsbílnum þann 8. september síðastliðinn.Vísir/GVAFengu ekki að vita af hlerunum Verjendur ákærðu voru ósáttir við að hafa ekki fengið að vera viðstaddir þegar rannsóknarlögreglumaðurinn gerði tilraunir sínar að koma niðursuðudósunum fyrir á fyrrnefndum stöðum. Lögreglumaðurinn staðfesti að tilraunin og ljósmyndir sem teknar voru og lagðar fyrir dóminn í morgun hefði verið gerð að beiðni saksóknara. Aðspurður hvort honum fyndist ekki óeðlilegt að Hollendingurinn sem sætir ákæru hefði ekki verið fenginn til þess að sýna rannsakendum á staðnum hvar hann faldi dósirnar sagðist hann ekki hafa neina skoðun á því. Sömuleiðis eru verjendur mjög ósáttir við hafa ekki verið upplýstir um hlerunaraðgerð sem fram fór á Litla-Hrauni sem hluti af rannsókn málsins. Klefi mannsins var hleraður og hlustað þegar að kona hans kom í heimsókn. Upplýsingar um hlerunina eða gögn þeim fylgjandi rötuðu ekki í gögn málsins sem verjendur fá í hendur í aðdraganda þess að mál fara fyrir dóm.Guðjón St. Marteinsson.Aðspurður hvers vegna gögnin hefðu ekki ratað í gögn málsins sagði rannsóknarlögreglumaðurinn að lögfræðingur lögreglunnar á Austfjörðum hefði metið það sem svo. Ekkert hefði komið fram í samtölum þeirra sem skipti máli. Verjendur spurðu rannsóknarlögreglumanninn hve oft hefði verið hlerað. Svaraði hann því að í tvígang hefði hann hlustað á samtöl parsins með aðstoð túlks. Í upphafi fyrra samtalsins hefðu þau sagt í upphafi samtalsins að þau ætluðu bara að ræða persónuleg málefni, „ekki hitt“. Þá neitaði rannsóknarlögreglumaður að lögreglan hefði framkvæmt aðrar aðgerðir eða fleiri hleranir sem verjendur hefðu ekki verið upplýstir um. Húsbílnum ekið til Reykjavíkur Guðjón St. Marteinsson, dómari í málinu, tók undir með verjendum að best væri að ákærði sýndi á vettvangi hvar hann faldi dósirnar. Saksóknari taldi það ekki nauðsynlegt en lagði þó til að ef ætti að gera það á annað borð væri tilvalið að vettvangsskoðun sækjanda, verjenda og dómara færi fram. Húsbílnum verður því ekið frá Seyðisfirði og í höfuðborgina þar sem vettvangsrannsókn mun fara fram þann 15. febrúar. Var aðalmeðferðinni í framhaldinu frestað.
Tengdar fréttir Fíkniefni upp á milljarð króna: Tólf ára fangelsisdómur virðist óumflýjanlegur Hollenskt par flutti til landsins fíkniefni að virði tæplega milljarðs. Dómafordæmi gera að verkum að miklar líkur eru á að þau hljóti hámarksrefsingu. 11. desember 2015 16:15 Hollenska parið var með 209 þúsund MDMA-töflur í húsbílnum Konan hafði sagt dóttur sinni og nágranna að hún og maðurinn væru á leið í frí til Spánar. 10. desember 2015 09:05 Fíkniefni fyrir tæpan milljarð: Maðurinn játar en konan neitar áfram sök Parið er á 45. aldursári og kom til landsins með Norrænu á Seyðisfirði þann 8. september síðastliðinn. 17. desember 2015 14:00 Mest lesið Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Innlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Erlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Háværar framkvæmdir stöðvaðar Innlent Fleiri fréttir Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Skortur á reglum um sæðisgjafir og menningarmiðstöð í kartöflugeymslu Háværar framkvæmdir stöðvaðar Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Rannsaka ólöglegt fiskeldi Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Steindór Andersen er látinn Sjá meira
Fíkniefni upp á milljarð króna: Tólf ára fangelsisdómur virðist óumflýjanlegur Hollenskt par flutti til landsins fíkniefni að virði tæplega milljarðs. Dómafordæmi gera að verkum að miklar líkur eru á að þau hljóti hámarksrefsingu. 11. desember 2015 16:15
Hollenska parið var með 209 þúsund MDMA-töflur í húsbílnum Konan hafði sagt dóttur sinni og nágranna að hún og maðurinn væru á leið í frí til Spánar. 10. desember 2015 09:05
Fíkniefni fyrir tæpan milljarð: Maðurinn játar en konan neitar áfram sök Parið er á 45. aldursári og kom til landsins með Norrænu á Seyðisfirði þann 8. september síðastliðinn. 17. desember 2015 14:00