Jamie Vardy afgreiddi Liverpool | Sjáið mörkin hans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2016 21:30 Jamie Vardy fagnar marki í kvöld. Vísir/AFP
Jamie Vardy skoraði bæði mörk Leicester City í kvöld þegar liðið vann 2-0 heimasigur á Liverpool og hélt þar með þriggja stiga forskoti sínu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Eftir mjög fjörugan fyrri hálfleik komu mörkin ekki fyrr en í seinni hálfleiknum. Jamie Vardy braut ísinn á 60. mínútu með frábæru skoti af löngu færi eftir að hann sá að Simon Mignolet var kominn of langt út úr markinu sínu. Jamie Vardy bætti síðan við öðru marki ellefu mínútum síðar og er þar með kominn með átján deildarmörk á þessu tímabili en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar. Skyndisóknir Leicester City hafa reynst liðum deildarinnar afar skeinuhættar á þessu tímabili og það breyttist ekki í kvöld. Leicester fékk tvö fínustu færi á fyrstu tíu mínútum leiksins, fyrst skaut Riyad Mahrez framhjá á 2. mínútu og svo varði Simon Mignolet skalla Shinji Okazaki upp á slána og síðan yfir markið á 9. mínútu. Liðin héldu áfram að sækja á víxl og skö0puðu sér nokkur ágæt færi í mjög skemmtilegum og fjörugum fyrri hálfleik. Það vantaði bara mörkin. Leicester-menn og þá sérstaklega Riyad Mahrez fengu hættulegustu færin og Simon Mignolet varði mjög vel frá honum á 34. mínútu. Liverpool-liðið byrjaði seinni hálfleik ágætlega og var líklegt til að skora á fyrstu mínútum hálfleiksins. Það var hinsvegar Jamie Vardy sem gerði út um leikinn á ellefu mínútum og spútnikliðið Leicester hefur þar með unnið 14 leiki á deildinni á þessu tímabili.Stórkostlegt mark hjá Jamie Vardy Jamie Vardy skorar sitt annað mark
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira