Bíó og sjónvarp

Leo, Larson og Revenant sigra samkvæmt greiningardeild Arion

Ásgeir Erlendsson skrifar
Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Óskarsverðlauna í kvöld fyrir bestu frumsömdu tónlistina í kvikmyndinni Sicario. Veðbankar eru þó ekki sigurvissir fyrir hans hönd en líklegast er talið að Ennio Morrione hljóti styttuna eftirsóttu fyrir tónlist í myndinni Hateful Eight.  

Erna Björg Sverrisdóttir hagfræðingur í greiningardeild Arion banka setti saman spálíkan fyrir óskarsverðlaunin í kvöld. Samkvæmt greiningardeildinni verða þetta sigurvegarar kvöldsins.  

„Það verður Leo, Brie Larson og The Revenant samkvæmt okkar spá. Þetta er bara byggt á tölfræðinni. Þetta er ekki byggt á neinu listrænu auga af okkar hálfu“

Þetta er í þriðja sinn sem Leonardo Di Capri er tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki og aðdáendur hans um allan heim vonast eftir að nú sé loks komið að honum.​


„Ég ætla ekki að leggja neitt mat á hvort hann eigi það skilið eða ekki en hann er líklegastur til að vinna í kvöld. Við höfum reynt fyrir okkur tvisvar, spáð vitlaust í bæði skipin. Vorum reyndar töluvert nær því í seinna skiptið heldur en fyrra skiptið.“

Erna vonar að greiningardeildin hafi rétt fyrir sér í þetta skipti.

„Það er mikið í húfi fyrir okkur, heiðurinn“. Segir Erna.

Óskarsverðlaunin hefjast klukkan 1:30 í nótt að íslenskum tíma.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×