Heildarvelta sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðar á Íslandi hefur aukist um 37 prósent frá árinu 2009. Samkvæmt tölum Hagstofunnar var heildarvelta iðnaðarins á Íslandi 34,5 milljarðar króna á síðasta ári. Undir þessa tölu fellur framleiðsla og dreifing kvikmynda og sjónvarpsefnis, kvikmyndasýningar, dagskrárgerð og útsendingar sjónvarps og útvarps.
Þá er heildarfjöldi ársverka í iðnaðinum um 1.300 talsins, á við þrjú stóriðjuverkefni. Þetta kemur fram í skýrslu sem Capacent vann fyrir FRÍSK.

Hallgrímur bendir einnig á að afþreyingarmarkaðurinn hér á landi hafi breyst mikið á undanförnum misserum, einkum vegna samkeppni frá Netflix og ólöglegu niðurhali. „Þessi vandamál skaða atvinnugreinina og einnig raunar hagsmuni opinberra aðila vegna glataðra skatttekna. Því miður hefur óhagstætt skattaumhverfi og takmarkaður stuðningur stjórnvalda á vissum sviðum sömuleiðis gert okkur erfitt fyrir,“ segir Hallgrímur.
Undir FRÍSK starfa RÚV, 365 miðlar, SkjárEinn, Samfilm, Sena, Myndform og Bíó Paradís. Skýrslan var einnig unnin í samstarfi við Samband íslenskra kvikmyndaframleiðanda sem eru heildarsamtök kvikmyndaframleiðanda á Íslandi.