Leikjavísir

Sýndarveruleiki CCP fylgir með símum frá Samsung

Bjarki Ármannsson skrifar
EVE:Gunjack er meðal þeirra leikja sem mun fylgja nýjustu símum frá símarisanum Samsung.
EVE:Gunjack er meðal þeirra leikja sem mun fylgja nýjustu símum frá símarisanum Samsung. Mynd/CCP
EVE:Gunjack, fyrsti sýndarveruleikaleikurinn frá tölvuleikjaframleiðandanum CCP, er meðal þeirra leikja sem mun fylgja nýjustu símum frá símarisanum Samsung. Samsung tilkynnti á snjallsímaráðstefnunni Mobile World Congress í Barcelona um helgina að Gear VR sýndaveruleikabúnaðurinn muni fylgja ókeypis með símum af gerðinni Galaxy S7 og S7 Edge sem pantaðir eru í forsölu.

Að því er kemur fram í frétt tímaritsins Fortune, munu sex tölvuleikir fylgja með hverju eintaki af Gear VR-gleraugunum. Ólíkir leikir fylgja með hjá ólíkum símafyrirtækjum en Gunjack verður í boði ásamt öðrum vinsælum leikjum á borð við Land‘s End og Anshar Wars 2. Tilboðið stendur yfir í takmarkaðan tíma.

Gunjack er skotleikur sem gerist í sama „heimi“ og EVE Online tölvuleikurinn, vinsælasti leikur CCP. Samsung snjallsíma er komið fyrir í Gear VR-gleraugunum sem notandinn ber á hausnum ásamt heyrnartólum. Með hverri hreyfingu spilarans birtist ný mynd á skjánum svo það er eins og spilarinn sé raunverulega staddur á fjarlægri plánetu að berjast við vélmenni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.