Kallar búvörusamninginn glórulausan fjáraustur Heimir Már Pétursson skrifar 23. febrúar 2016 19:15 Helgi Hjörvar. Vísir/Valli
Helgi Hjörvar segir búvörusamnnginn ekki vera til hagsbóta fyrir bændur og neytendur og fela í sér glórulausn fjáraustur. Forsætisráðherra segir að með nýjum búvörusamningum sé verið að leitast við að bæta starfsaðstöðu bænda og gera þeim kleift að sækja fram. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu búvörusamninginn á Alþingi í dag og kölluðu hann hann m.a. glórulausn fjáraustur. Búvörusamningurinn nýi fellur ekki svínabædum í geð því í tilkynngu frá stjórn Svínaræktarfélags Íslands er lyst vonbrigðum með samninginn. Á næstu tíu árum séu framlög til uppbyggingar svínabúa 440 milljónir á sama tíma og ríkið geri miklar kröfur til svínaræktenda. Það muni kosta 2,5 til 3,2 milljarða að verða við öllum þeim kröfum en stuðningurinn við svínaræktendur sé ekki í neinu samræmi við stuðning við svínabændur í nágrannalöndum þar sem kröfurnar væru svipaðar. Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar sagði á þingfundi í dag að Alþingi stæði frami fyrir því að ræða málin eftir á án þess að samráð hafi verið haft við alla hagsmunaaðila. „En almennt held ég að það sé tími fyrir okkur til að losna undan þessum bévitans hábölvaða ósið að taka alltaf mikilvægar og stefnumarkandi ákvrðanir án gegnsæis og án lýðræðislegrar umræðu . Án þess að við myndum okkur stefnu fyrirfram,“ sagði Óttarr. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðerra sagði óþarfa að setja samning við bændur sérstaklega í þetta samhengi. „Tala um eitthvað bakherbergi og slíkt. Það er ekki gert þegar verið er að semja við aðrar stéttir. Svoleiðis að mér finnst óviðeigandi að menn skuli fara sérstaklega í bændur með þessum hætti og telja að þeir eigi að vera tilefni til einhverra átaka. Eða menn eigi að semja hér úr þessum ræðustól þegar kemur að bændum en annað eigi að gilda um alla hina,“ sagði forsætisráðherra.Þess virði að ræða útdeilingu skattfjár Ásta Guðrún Helgadóttir þingmaður Pírata sagðist skynja titring á milli stjórnarflokkanna í þessu máli. Það væri áhugaverð nálgun hjá forsætisráðherra að tala um búvörusamninginn sem laun til bænda. "Eins og hæstvirtur forsætisráðherra lýsir þessu er hann í raun að lýsa einhverjum bændalaunum,“ sagði Ásta Guðrún. „Hér er um að ræða útdeilingu á íslensku skattfé og það er þess virði að líta á það hvernig þessu er deilt út.“ Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar sagði þessa samninga binda stjórnvöld fram yfir tvöm kjörtímabil með útgjöldum upp á um eina milljón á hverja fjölskyldu í landinu. „En ég skil vel að forsætisráðherra segi um þennan nýja búvörusamning að það sé búið mál og afgreitt mál. Vegna þess að það er einfaldlega þannig að þessi fjáraustur er alveg glórulaus. Því það nást einfaldlega ekki markmið um framfarir og endurbætur á úreltu lándbúnaðarkerfi í þágu bænda og í þágu neytenda. „Nú þegar háttvirtur þingmaður er orðinn formannsframbjóðandi hvet ég hann til þess að gæta hófs í málflutningi. Tala af skynsemi og tala vel til bænda. Vegna þess að virðurlegur forseti, að bændur ...“ en lengra komst forsætisráðherrann ekki vegna óróa í þingsalnum. En bætti svo við síðar: „Það má kannski frekar virðurlegur forseti segja að bændur hafi, meðal annars vegna viðhorfa eins og þessi háttvirtur þingmaður lýsir, ekki notið sömu réttinda eins og aðrar stéttir. En með nýjum búvörusamningum er þó verið að leitast við að bæta starfsaðstöðu þeirra og gera þeim kleift að sækja fram og það gagnast samfélaginu öllu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Helgi sagðist ekki þurfa leiðsögn um hvernig hann ætti að tala um fólk. Hann reyndi yfirleitt að tala vel um annað fólk.
Búvörusamningar Tengdar fréttir Búvörusamningar: Kostnaður ríkisins við landbúnaðinn meiri en kostnaður Svavarssamninga hefði verið Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að þegar spurt sé nákvæmlega hvernig almenningur hagnast á nýjum búvörusamningum, þá séu svörin mjög loðin. 20. febrúar 2016 12:46 „Tæplega til að bæta velferð nema örfárra bænda“ Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru harðorðir í garð nýs búvörusamnings. 20. febrúar 2016 20:14 Forsætisráðherra gagnrýnir gagnrýni á nýjan búvörusamning Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að gagnrýni á bændur og landbúnað langt út í haga með samanburði á milli nýs búvörusamnings og Icesavesamnings. 20. febrúar 2016 16:22 Nýr samningur skapi smjörfjöll Hagfræðiprófessor býst við offramleiðslu mjólkur í kjölfar nýrra búvörusamninga. Bændur verði festir í kerfi sem hefti nýsköpun og lítt sé hugað að hag neytenda. Íbúar SV-lands niðurgreiði mjólk fyrir aðra. 23. febrúar 2016 07:00 Segir nýjan búvörusamning vera dauðadóm Ólafur M. Magnússon forstjóri Mjólkurbúsins Kú gagnrýnir harðlega nýjan búvörusamning og segir hann vera aðför að neytendum. 21. febrúar 2016 12:23 Mest lesið Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags Erlent Yfirmaður strandgæslunnar látinn fjúka Erlent Kæra ákvörðun Trumps: „Hann getur ekki breytt stjórnarskránni með einu pennastriki“ Erlent Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent Fjárfesta í gervigreind fyrir 70 billjónir Erlent Heitar umræður um lokun flugbrautar Innlent „Gímaldið“ á borði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Innlent Íhugar að leggja viðbótartoll á allar vörur frá Kína Erlent 76 látnir eftir eldsvoðann í Tyrklandi Erlent Maðurinn sem ók á Ibrahim: „Skelfilegt að enda ferilinn svona“ Innlent Fleiri fréttir Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ „Gímaldið“ á borði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Heitar umræður um lokun flugbrautar Eldur kviknaði í pappagámi í Skeifunni Prammi á ferðinni á Ölfusá vegna nýrrar brúar Kristrún væntir áframhaldandi náinna samskipta við Bandaríkin 155 milljónir til sviðslistaverkefna Dagur kveður eftir 23 ár í borginni Rýnt í fyrsta dag Trumps í embætti og deilt um Reykjavíkurflugvöll Sjúkraflug mikilvægara en „að rífast um einhver tré“ Einhver heimili enn keyrð á varaafli Hefur ekki fengið verkefni í mánuð Sjá auknar líkur á eldgosi í kortunum Öllum rýmingum aflétt Sagði skilaboð þar sem hann sagðist fullur eftirsjár fölsuð Þúsund skref aukalega skila 15 prósent lægri dánartíðni Undirbúa móttöku þeirra sem verða sendir frá Bandaríkjunum Ætla að breytast í stjórnmálaflokk á fyrsta landsfundinum í sex ár Rýmingum aflétt í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Vopnafirði Búast við afléttingu fyrir austan í hádeginu Kaldasta árið á landinu í rúman aldarfjórðung Kallar eftir þjóðarátaki: Skólastjóri segir agaleysi innan skólanna óboðlegt Maðurinn sem ók á Ibrahim: „Skelfilegt að enda ferilinn svona“ Bein útsending: Veður og veitur – áskoranir fráveitna vegna loftslagsbreytinga Ráðast í átaksverkefni í kjölfar sýkingarinnar á Mánagarði Rýmingum væntanlega aflétt og fært um Fjarðarheiðina Kviknaði í pappírsgámi í Kópavogi Flokkur fólksins fengið 240 milljónir þrátt fyrir ranga skráningu Kæru VÁ á hendur MAST vísað frá Sjá meira
Búvörusamningar: Kostnaður ríkisins við landbúnaðinn meiri en kostnaður Svavarssamninga hefði verið Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að þegar spurt sé nákvæmlega hvernig almenningur hagnast á nýjum búvörusamningum, þá séu svörin mjög loðin. 20. febrúar 2016 12:46
„Tæplega til að bæta velferð nema örfárra bænda“ Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru harðorðir í garð nýs búvörusamnings. 20. febrúar 2016 20:14
Forsætisráðherra gagnrýnir gagnrýni á nýjan búvörusamning Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að gagnrýni á bændur og landbúnað langt út í haga með samanburði á milli nýs búvörusamnings og Icesavesamnings. 20. febrúar 2016 16:22
Nýr samningur skapi smjörfjöll Hagfræðiprófessor býst við offramleiðslu mjólkur í kjölfar nýrra búvörusamninga. Bændur verði festir í kerfi sem hefti nýsköpun og lítt sé hugað að hag neytenda. Íbúar SV-lands niðurgreiði mjólk fyrir aðra. 23. febrúar 2016 07:00
Segir nýjan búvörusamning vera dauðadóm Ólafur M. Magnússon forstjóri Mjólkurbúsins Kú gagnrýnir harðlega nýjan búvörusamning og segir hann vera aðför að neytendum. 21. febrúar 2016 12:23
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent