Lífið

Ótrúleg breyting á manninum sem bað heiminn um að láta Britney í friði - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Chris Crocker varð heimsfrægur á einu augabragði.
Chris Crocker varð heimsfrægur á einu augabragði. vísir
Það muna eflaust ekki margir eftir nafninu Chris Crocker en það muna aftur á móti margir eftir myndbandi sem hann setti inn á YouTube þar sem hann bað heiminn um að láta Britney Spears í friði.

Myndbandið vakti gríðarlega athygli og kom þar fram þegar mikið var fjallað um hegðun Britney Spears. Þá var hún að ganga í gegnum skilnað og hafði nýverið rakað af sér hárið.

Sjá einnig: Britney: Stjörnuhrapið mikla

Hún var töluvert gagnrýnd og töluðu sumir um það að Spears væri að missa vitið. Þetta fór ekki vel í Crocker sem brotnaði gjörsamlega niður í myndbandinu og grátbað heiminn um að láta poppdívuna í friði í september árið 2007.

Síðan þá hefur Chris heldur betur breyst og í dag hefur hann látið ljósu lokkana flakka og er kominn með nokkuð myndarlegt skegg.

Hér að neðan má sjá nýja mynd af manninum sem elskar Britney Spears meira en flest allir. 

Svona lítur kallinn út í dag.vísir
Hér að neðan má sjá myndbandið fræga

Tengdar fréttir

Britney: Stjörnuhrapið mikla

Britney Spears er fædd í McComb í Mississippi í desember 1981 en var alin upp í Kentwood í Louisiana.

Aðdáandi snýst til varnar fyrir Britney

Chris nokkur Crocker verður að teljast til hörðustu aðdáenda Britney Spears. Heimagert myndband þar sem hann hágrætur yfir því hvernig fólk og fjölmiðlar níðast á Britney Spears hefur farið eins og eldur í sinu um netið og hafa nú þegar milljónir manna skoðað það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×