Lífið

Kanye og Deadmau5 í hár saman: „Spilarðu í afmælisveislum?“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Deadmau5 og Kanye West saman á sviði þegar Tidal var kynnt til sögunnar.
Deadmau5 og Kanye West saman á sviði þegar Tidal var kynnt til sögunnar. vísir/getty
Bandaríska hiphop listamanninum Kanye West og kanadíska raftónlistarmanninum Deadmau5 lenti saman á Twitter í dag. Grínaðist Kanye meðal annars hvort Deadmau5 tæki að sér að skemmta í afmælisveislum og hvort hann gæti komið fram með höfuð Minnu músar í stað síns venjulega hjálms.

Deilan hófst eftir að West deildi mynd á Twitter sem sýndi hann hlusta á Death With Dignity, upphafslag plötunnar Carrie & Lowell með Sufjan Stevens en platan kom út í fyrra. Það sem meira er þá sýndi næsti flipi síðuna Pirate Bay og að hann hefði verið að leita að tónlistarforritinu Serum.

Þetta virðist hafa farið öfugt ofan í Deadmau5 en það er listamannsnafn Joel Zimmermann. Hann brást hinn versti við og setti út á það að Kanye myndi ekki hafa efni á því að kaupa forrit sem kostar 200 dollara eða rétt rúmlega 26.000 íslenskar krónur.

Það þótti einnig undarlegt að West væri að hlusta á tónlist með Youtube en ekki í gegnum tónlistarveituna Tidal. Rapparinn hefur verið einn ötulasti talsmaður tónlistarveitunnar Tidal og hefur nýjasta afurð hans, The Life of Pablo, eingöngu verið aðgengileg á veitunni og hvergi annars staðar. Deilan þykir einnig áhugaverð í ljósi þess að West og Zimmermann eru báðir meðal stofnenda Tidal veitunnar.

Í samtali við tónlistarsíðuna Pitchfork segja almannatenglar rapparans að umrædd tölva sé ekki tölvan hans Kanye. Hún sé af gerðinni Samsung en alkunna sé hins vegar að umbjóðandi þeirra noti aðeins Mac tölvur. Tístið hafi verið hugsað sem háðsádeila á hve oft plötu hans, The Life of Pablo, hefur verið stolið meðal annars í gegnum Pirate Bay.

Í dag svaraði Kanye West fyrir sig á Twitter. Spurði hann meðal annars hver í teymi Kanadamannsins hefði það hlutverk að flytja músarhöfuðið milli landa og hvort hann hygðist láta brúður sína klæða sig sem Minnu mús í brúðkaupi þeirra. Einnig fannst honum gífurlega sniðugt að gantast með að nafn hans væri borið fram sem dead-mow-five.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem West lætur allt flakka á Twitter en skömmu fyrir útgáfu plötu sinnar baunaði hann duglega á Wiz Khalifa. Wiz Khalifa var eitt sinn á föstu með Amber Rose en hún og West áttu eitt sinn í ástarsambandi.



Einnig kallaði West eftir fjárhagsaðstoð frá Mark Zuckerberg. Eiginkona hans, Kim Kardashian, lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að hún stæði að baki manni sínum í gegnum súrt og sætt en síðar meir fóru sögusagnir á kreik um að skilnaður þeirra væri í kortunum.


Tengdar fréttir

Kanye West segist skulda milljarða

Kanye West er einn þekktasti tónlistarmaðurinn í heiminum og hefur hann sett sinn svip á rappsenuna undanfarinn áratug og rúmlega það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.