Bíó og sjónvarp

Svona lítur stelpan úr Little Miss Sunshine út í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það muna allir eftir Olive Hoover.
Það muna allir eftir Olive Hoover.
Kvikmyndin Little Miss Sunshine sló heldur betur í gegn fyrir um áratugi síðan og vann hún til að mynda tvenn Óskarsverðlaun.

Leikkonan Abigail Breslin sló heldur betur í gegn í myndinni en hún fór með hlutverk stúlkunnar Olive Hoover.

Myndin fékk Óskarinn árið 2007 fyrir besta handritið og fékk Alan Arkin fyrir besta leikara í aukahlutverki. Olive Hoover var aðalsöguhetja kvikmyndarinnar og var um að ræða krúttlegustu stelpuna í heiminum árið 2006 þegar myndin kom út.

Abigail var níu ára þegar hún lék í myndinni og hefur hún því eðlilega breyst töluvert síðan þá en í dag er hún 19 ára. Hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Little Miss Sunshine.

Í dag leikur hún í þáttunum Scream Queens á sjónvarpsstöðinni FOX en hér að neðan má sjá hvernig hún lítur út í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×