Kasta upp á hvor byrjar tónleikana Gunnar Leó Pálsson skrifar 18. mars 2016 10:00 Hljómsveitirnar Ensími og 200.000 Naglbítar eru vinasveitir miklar og ætla sameina krafta sína á tvennum tónleikum í apríl. vísir/ernir
Hljómsveitirnar Ensími og 200.000 Naglbítar ætla að sameina krafta sína og halda sameiginlega tónleika í Reykjavík og á Akureyri um miðjan apríl næstkomandi. Það þarf vart að kynna þessar sveitir enda landskunnar en báðar voru þær stofnaðar á tíunda áratug síðustu aldar.Holl samkeppni „Þetta hefur meira verið svona holl samkeppni, það vilja auðvitað allir vera aðal, með flottustu lögin og flottastir á sviðinu. En þetta hefur ekkert verið svona Oasis-Blur metingur,“ segir Vilhelm Anton Jónsson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar 200.000 Naglbítar, léttur í lundu, spurður út í hvort rígur sé á milli hljómsveitanna. „Mér finnst Ensími vera ótrúlega flott hljómsveit og við værum örugglega ekki að þessu nema hljómsveitirnar fíluðu hvor aðra,“ bætir hann við. Franz Gunnarsson, gítarleikari Ensími, tekur í sama streng. „Það hefur ekki verið mikill rígur, áður fyrr var dálítill samgangur og við spiluðum nokkrum sinnum saman á síðustu öld. Það hefur lítið farið fyrir því að undanförnu en auðvitað höfum við verið að hittast eitthvað á förnum vegi og þessari pælingu hefur verið hent eitthvað fram en nú var ákveðið að það væri kominn tími á þetta,“ segir Franz.Meðlimir 200.000 Naglbíta eru þeir Vilhelm Anton Jónsson söngvari og gítarleikari, Kári Jónsson bassaleikari og Benedikt Brynleifsson trommuleikari.vísir/stefánGæta hófs í tónleikahaldi Ensími hefur gefið út fimm breiðskífur og Naglbítarnir þrjár en báðar eiga sveitirnar það sameiginlegt að hafa gætt hófs í tónleikahaldi á ferli sínum. „Við höfum aldrei farið í það að vera að spila um hverja helgi. Við vorum að spila meira en við gerum í dag en höfum aldrei verið að spila á fullu úti um allt,“ segir Villi. Eins og margir vita eru meðlimir Ensími flestir í fleiri hljómsveitum eins og Dr. Spock og að spila með Mugison og fleirum og því hefur oft gengið illa að ná mönnum saman til tónleikahalds. „Við erum voða mikið úti um allar trissur að spila með hinum og þessum þannig að tónleikahald hefur aðallega verið í gangi þegar við höfum verið að gefa eitthvað út,“ útskýrir Franz. Ensími gaf síðast út breiðskífuna Herðubreið á síðasta ári og Naglbítarnir gáfu síðast út breiðskífu árið 2003 sem ber titilinn Hjartagull en sveitin gaf þó út plötu með Lúðrasveit verkalýðsins árið 2007.Nýtt efni væntanlegt Bæði Franz og Villi gera allt eins ráð fyrir því að nýtt efni gæti litið dagsins ljós á tónleikunum. „Við erum að semja fullt af nýju efni og munum örugglega spila eitthvað af því. Við höfum samið fullt af flottu og skrítnu stöffi og erum að velta fyrir okkur hvað við viljum gera við það,“ segir Villi fullur tilhlökkunar. Franz segir Ensími eiga gommu af efni sem sé óútgefið og þegar síðasta plata kom út átti Ensími efni í aðra heila plötu. „Það er mikil gróska innan bandsins í að semja nýtt efni þannig að ég á alveg von á því að við gerum eitthvað nýtt og ferskt á næstunni,“ segir Franz.Meðlimir Ensími eru þeir Hrafn Thoroddsen söngvari og gítarleikari, Guðni Finnsson bassaleikari, Franz Gunnarsson gítarleikari, Arnar Þór Gíslason trommuleikari og Þorbjörn Sigurðsson hljómborðsleikari.Kasta upp á hvor byrjar Ekki liggur fyrir hvor hljómsveitin byrjar tónleikana og ætla sveitirnar að láta það ráðast í hljóðprufunni fyrir tónleikana. „Það verður kastað upp á hvor sveitin byrjar í hljóðprufunni. Það verður ekkert gefið út um það hvor byrjar fyrr en tónleikarnir hefjast,“ segir Villi. „Við látum örlögin ráða því hvor byrjar og það sýnir það einmitt að það er enginn rígur á milli hljómsveitanna og það er enginn að berjast um að fá að vera „headliner“ og þess háttar,“ segir Franz. Þá er einnig hugmyndin að samstarf sveitanna haldi áfram og gæti farið svo að tónleikarnir yrðu fleiri. „Það er svo aldrei að vita hvað gerist á þessum tónleikum, það gæti alveg farið svo að við tækjum Naglbítalag og þeir tækju Ensímilag eða að við búum jafnvel saman til nýtt lag,” bætir Franz við léttur í lundu. Tónleikarnir fara fram þann 14. apríl á Gauknum í Reykjavík og þann 15. apríl á Græna hattinum á Akureyri. Forsala er hafin á tix.is og midi.is.Hljómsveitin Ensími var stofnuð í Reykjavík árið 1996. Breiðskífur sveitarinnar eru:Kafbátamúsík – 1998BMX – 1999Ensími – 2002Gæludýr – 2010Herðubreið - 2015200.000 Naglbítar var stofnuð á Akureyri árið 1993. Breiðskífur sveitarinnar eru:Neóndýrin - 1998Vögguvísur fyrir skuggaprins - 2000Hjartagull – 2003
Tónlist Mest lesið Lítil tengsl við okkar innri kynveru koma niður á kynlífinu Lífið Kántrígoðsögnin Kris Kristoffersson látin Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látin Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira