Tónlist

Jay-Z fjarlægir plötur sínar af vefnum

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Deadmau5, Kanye West og Jay-Z á opnun Tidal í október 2014.
Deadmau5, Kanye West og Jay-Z á opnun Tidal í október 2014. Visir/Getty
Rapparinn Jay-Z hefur fjarlægt Blueprint trilógíu sína af öllum helstu nettónlistarveitum heims nema sinni eigin. Þeir aðdáendur kappans sem styðjast við Spotify, Googleplay, iTunes og framvegis neyðast því til þess að skrá sig hjá Tidal og borga þar fyrir áskrift vilji þeir hlýða á þessar vinsælustu plötur hans. Nokkuð er síðan rapparinn lét fjarlægja frumraun sína af öðrum þjónustum. Aðrar plötur Jay-Z, svo sem báðar Greatest Hits plötur hans, eru þó enn á sínum stað.

Rapparinn tilkynnti um þessa nýju tónlistarveitu sína fyrir um einu og hálfu ári síðan með heljarinnar viðhöfn þar sem margar af stærstu stjörnum tónlistarbransans komu fram og sýndu stuðning sinn. Þjónustan leggur sig fram við að bjóða upp á hlustun í betri gæðum en margar aðrar og býður ekki upp á fría útgáfu. Einnig er lagt upp úr því að þjónustan sé í eigu listamanna og því sé þeirri hluti af gróða meiri en annars staðar.

Viðbrögð við Tidal hafa verið misjafnar og töluvert var um uppsagnir hjá fyrirtækinu í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.