Bíó og sjónvarp

Indiana Jones snýr aftur sumarið 2019

Bjarki Ármannsson skrifar
Hattinum, jakkanum og svipunni mun sennilega öllum bregða fyrir í nýju myndinni.
Hattinum, jakkanum og svipunni mun sennilega öllum bregða fyrir í nýju myndinni. Vísir/Getty
Disney greindi frá því í dag að þekktasti fornleifafræðingur kvikmyndasögunnar, Indiana Jones, mun birtast á silfurtjaldinu sumarið 2019. Til stendur að gera fimmtu myndina um kappann og mun Harrison Ford snúa aftur sem Jones og Steven Spielberg leikstýra myndinni, líkt og hinum fjórum.

Kvikmyndirnar um Indiana Jones hafa halað inn hátt í tveimur milljörðum Bandaríkjadala, eða um 250 milljörðum íslenskra króna, um heim allan. Fyrsta myndin, Raiders of the Lost Ark, kom út árið 1981 og sú síðasta, Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull, árið 2008 eftir langt hlé á kvikmyndabálknum.

Ný mynd um Jones hefur lengi verið í deiglunni en Spielberg sagði í desember síðastliðnum að það kæmi ekki til greina að nokkur annar en Ford færi með hlutverk kappans.

Hér fyrir neðan eru 25 eftirminnilegar línur úr Indiana Jones myndunum rifjaðar upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.