Innlent

Ólafur Jóhann skoðar framboð

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Stuðningsmenn Ólafs Jóhanns hafa þrýst á hann að bjóða sig fram. Ólafur Jóhann hugsar málið.
Stuðningsmenn Ólafs Jóhanns hafa þrýst á hann að bjóða sig fram. Ólafur Jóhann hugsar málið.
Aukinn þrýstingur er á Ólaf Jóhann Ólafsson, rithöfund og aðstoðarforstjóra Time Warner, að gefa kost á sér í forsetaframboð.

Fjölmargir hafa sent Ólafi hvatningu beint eftir traustum heimildum fréttastofu. Ólafur hefur svarað með þeim orðum að hann meti hvatninguna mikils og muni hugleiða málið.

Hvatningar koma ekki síst frá fólki sem vill ekki að næsti forseti verði pólitískur og fólki sem telur að hann geti endurvirkjað embættið sem sameiningartákn þjóðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×