Bíó og sjónvarp

Hilmir Snær skráði sig á Tinder til að auglýsa myndina

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Eflaust ráku einhverjir upp stór augu þegar Hilmir Snær Guðnason leikari birtist skyndilega á stefnumótaforritinu Tinder.
Eflaust ráku einhverjir upp stór augu þegar Hilmir Snær Guðnason leikari birtist skyndilega á stefnumótaforritinu Tinder. vísir/vilhelm
Hilmir Snær Guðnason leikari skráði sig á stefnumótaforritið Tinder í dag til að auglýsa kvikmyndina Fyrir framan annað fólk. Þar er hann skráður undir nafninu Friðrik og segist 43 ára gamall.  Mbl greindi frá.

„Þetta er semsagt ekki ég, heldur Friðrik Axelsson úr myndinni sem við vorum að gera, karakter úr myndinni. Hann ákvað að skella sér á Tinder því hann er bara þannig gaur,“ segir Hilmir í samtali við Vísi.

Kvikmyndin er eftir Óskar Jónasson og var frumsýnd í síðasta mánuði. Hilmir fer með eitt aðalhlutverka myndarinnar og leikur einmitt umræddan Friðrik Axelsson. Segja verður að þessi markaðssetning sé nokkuð nýstárleg og eflaust hafa einhverjir rekið upp stór augu þegar þessi ástsælasti leikari landsins birtist á stefnumótaforritinu, en hann er harðgiftur.

Ekki er ljóst hversu lengi Friðrik hyggst stunda slíka makaleit né hvort hún verði einhver ef því er að skipta.


Tengdar fréttir

Gefa hjartað með Tinder

Tinder hefur samstarf við bresku heilbrigðisstofnunina til að fjölga líffæragjöfum.

Breytingar hjá Tinder

Ætla að draga úr slæmum "mötchum“ og bæta við upplýsingum um menntun og atvinnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.