Erlent

Kosningastjóri Donald Trump ákærður fyrir líkamsárás

Atli Ísleifsson skrifar
Corey Lewandowski.
Corey Lewandowski. Vísir/AFP
Kosningastjóri Donald Trump, Corey Lewandowski, hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á fréttamann á kosningafundi Trump í Flórída þann 8. mars síðastliðinn.

Í frétt BBC um málið kemur fram að Lewandowski hafi verið ákærður fyrir að hafa tekið harkalega um handlegg fréttamannsins Michelle Fields hjá Breitbart News og þegar hún reyndi að spyrja Trump spurningar.

Fields birti mynd af áverkum sínum á Twitter.

Forsvarsmenn kosningabaráttu Trump segja Lewandowski hafna þeim ásökunum á hann eru bornar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×