Drög að tillögum verkefnisstjórnar um rammaáætlun voru kynnt í dag og fara sjö virkjunarkostir á fimm svæðum í orkunýtingarflokk samkvæmt þeim. Svæðin sem um ræðir eru Skrokkalda, Þjórsá, Krýsuvíkursvæði, Hengilssvæði og Blöndulundur.
Virkjunarkostirnir eru Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun í Þjórsá, Austurengjar á Krýsuvíkursvæði, Hverahlíð II og Þverárdalur á Hengilssvæði og svo Blöndulundur.
Í verndarflokk fara fjórir virkjunarkostir í Héraðsvötnum, aðrir fjórir í Skjálfandafljóti, einn virkjunarkostur í Skaftá og einn í Þjórsá – vestur.
Í biðflokk fara svo tveir virkjunarkostir í Hólmsá og svo einn virkjunarkostur á eftirfarandi stöðum: Hvítá, Hagavatn, Stóra-Laxá, Austurgil, Krísuvíkursvæði, Hengilssvæði, Hágöngur, Fremrinámar og Búrfellslundur.
Umsagnarferli um tillögur verkefnisstjórnarinnar um flokkun virkjunarkosta hefst þann 11. maí næstkomandi. Það stendur í 12 vikur eða til og með 3. ágúst. Eftir það mun verkefnisstjórnin ganga frá endanlegum tillögum sínum til ráðherra og afhenda þær þann 1. september.
Kynningarfund vegna rammaáætlunar má sjá í heild sinni hér að neðan en athugið að virkja þarf Silverlight-tengiforrit og að útsendingin virkar ekki í Chrome-vafranum. Þá má sjá skýrslu verkefnisstjórnar í heild sinni hér.
Skrokkalda og neðri hluti Þjórsár í nýtingarflokk
Tengdar fréttir
Nýta má orku Hverahlíðar á Hellisheiði
Orkustofnun hefur heimilað Orku náttúrunnar, dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur, að nýta orku úr jarðhitageymi við Hverahlíð fyrir Hellisheiðarvirkjun. Heimildin var gefin út í byrjun mánaðarins, en svæðið bætist við önnur svæði á Hellisheiði sem virkjunin nýtir.
Vonast eftir breiðri sátt um rammaáætlun
Jón Gunnarsson formaður atvinnuveganefndar Alþingis vonast til þess að hægt verði að ná breiðri sátt um breytingar á rammaáætlun. Lagt er til að fimm virkjunarkostir verði færðir úr biðflokki í nýtingarflokk en Jón gerir ráð fyrir því að Alþingi afgreiði málið í vor.