Bíó og sjónvarp

Flugfreyjur fjölmenntu á Reykjavík í Háskólabíói

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helga Möller var að sjálfsögðu mætt.
Helga Möller var að sjálfsögðu mætt. vísir
Meðlimir í Flugfreyjufélagi Íslands fjölmenntu í Háskólabíó í gær á sérstaka boðsýningu á Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson.

„Okkur fannst gaman að bjóða Flugfreyjufélaginu í bíó því Nanna Kristín leikur kollega þeirra í myndinni, tilefnið var nú ekkert dýpra en það,“ segir Ásgrímur.

Reykjavík er ljúfsár gamanmynd þar sem Atli Rafn Sigurðarson og Nanna Kristín Magnúsdóttir fara með aðalhlutverkinu. Myndin var frumsýnd fyrr í mánuðinum og hefur fengið fína dóma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.