Lífið

Ekkert hættur að mála

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Þær eru ekki allar stórar myndirnar mínar,“ segir Ketill.
"Þær eru ekki allar stórar myndirnar mínar,“ segir Ketill. Vísir/Vilhelm
„Á ég að tala íslensku, frönsku eða kínversku?“ spyr Ketill Larsen stríðnislega þegar hann er beðinn um viðtal vegna sýningar sem hann er að opna í dag klukkan 17 í Ráðhúsinu í Reykjavík. Ég vel fyrsta kost – eftir talsverða umhugsun!

Ketill er með fulla tösku af málverkum og teikningum sem hann er að fara að stilla upp í Tjarnarsalnum. Svo hafa börn hans og barnabörn líka tekið til hendinni og tengdasynirnir leggja sitt af mörkum.

„Ég á átta barnabörn, þau gera hlutina á sinn hátt, teikna, mála og sulla og annar tengdasonur minn, sem er ítalskur, gerir andlitsgrímur, mjög vel telgdar í úrvalstré.  Hann hefur sýnt í fleiri löndum,“ lýsir Ketill sem kveðst sjálfur hafa teiknað mikið að undanförnu.

„En ég er ekkert hættur að mála,“ tekur hann fram. „Ég hef málað frá 1970 – milli sjö og tíu þúsund málverk og það sem er á sýningunni er samtíningur frá öllu þessu tímabili.“



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 31. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.