Innlent

Fólkið á Facebook er furðulostið

Jakob Bjarnar skrifar
Fjölmargir krefjast afsagnar Sigmundar Davíðs. Ekki er ofsagt að fólkið á Facebook sé þrumu lostið eftir Kastljósþátt kvöldsins.
Fjölmargir krefjast afsagnar Sigmundar Davíðs. Ekki er ofsagt að fólkið á Facebook sé þrumu lostið eftir Kastljósþátt kvöldsins.
Viðbrögðin á Facebook, eftir Kastljósþátt kvöldsins, lýsa fremur því að fólk er furðu lostið fremur en að það sé reitt. Vísir skautaði þar yfir og tók nokkra „statusa“ að handahófi til marks um hneykslan fólks – sem er ósvikin. Flestir telja að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eigi að segja af sér hið fyrsta og þeir stjórnarandstöðumenn sem tjá sig boða vantrauststillögu.

Vantrauststillaga á leiðinni

Þannig segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, í pistli nú í kvöld: „Í þingmannahópi meirihlutans á Alþingi, í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, er margt gott fólk með hjartað á réttum stað og höfuðið rétt skrúfað á, sem raunverulega fór í pólitík af góðum hug og með það að markmiði að gera Ísland betra samkvæmt sínum skilningi. Eðlilega er maður oft ósammála þeim, ýmist um aðferðafræði, sjónarmið eða jafnvel grunngildi, enda eðlilegt í pólitík.

En núna virkilega liggur á því að þingmenn stjórnarmeirihlutans velti fyrir sér hvers vegna þeir fóru í pólitík. Fóru þeir í pólitík til að verja þetta? Eru þeir reiðubúnir til þess að leggja nafn sitt gegn vantrauststillögu eftir það sem nú hefur verið opinberað?

Helgi Hrafn neitar að trúa því og ætla ekki að trúa því að meirihluti þingsins muni greiða atkvæði gegn tillögu um vantraust eftir þettavísir/gva
Sjálfur hef ég orðið vitni að hreint út sagt ótrúlegum hlutum í pólitík, til dæmis það að yfirhöfuð komast inn á þing í kosningunum 2013. Eftir það, sögulegt stökk flokksins okkar í skoðanakönnunum sem ekkert lát virðist vera á, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika. Við búum í heimi þar sem fáránlega ólíklegir atburðir eiga sér stað á hverjum einasta degi og það hættir í sjálfu sér að koma manni á óvart að eitthvað stórkostlega ólíklegt hafi átt sér stað.

En ég neita að trúa því og ætla ekki að trúa því að meirihluti þingsins muni greiða atkvæði gegn tillögu um vantraust eftir þetta.“

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, er á svipuðu róli:

Katrín segir þetta ekki ganga lengur.right
„Forsætisráðherra Íslands er fremstur í flokki kjörinna fulltrúa sem kjósa að spila ekki eftir þeim leikreglum sem við höfum sett okkur sem samfélag og leyna í ofanálag þeim upplýsingum. Þetta gengur ekki lengur. Við verðum sem samfélag að takast á við þennan algjöra trúnaðarbrest og ráðamenn eiga að axla ábyrgð.“

Orðspor á alþjóðavettvangi í rúst

En, það eru ekki bara stjórnmálamenn sem tjá sig. Gauti Eggertsson, sem meðal annars hefur starfað fyrir Bandaríska Seðlabankann, leynir því hvergi að honum er brugðið:

„Kastljós: Þetta eru skelfilegar fréttir fyrir alla Íslendinga og orðspor okkar á alþjóðavettvangi. Næstu skref eru mikilvæg. Ég vona að fólk persónugeri ekki hlutina heldur setja þetta í mun stærra samhengi. Þetta snýst ekki lengur um persónur heldur orðstír Íslands.“

Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri segir: „Frá og með þessu kvöldi veit nánast öll Vestur-Evrópa, að Ísland er spilltasta land Evrópu.“

Jónas segir að nú viti öll Vestur-Evrópa, að Ísland er spilltasta land Evrópu.
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur á vart orð til í eigu sinni: „Félagsskapurinn sem íslenski forsætisráðherrann er í ... undanfærslurnar ... ósannindin ... óheilindin ... frammistaðan í viðtalinu ... paranojan ... enskukunnáttan! ...“

Hvar fást hauspokar?

Tónlistarmaðurinn Magga Örnólfs þykist slá á létta strengi: „Vei, við erum aftur heimsfræg! Hvar fást fallegir hauspokar?“

Þórarinn Þórarinsson blaðamaður er ekki bjartsýnn, venju fremur: „Snöggt yfirlit yfir Facebook bendir til þess að fjöldi fólks hafi misst allar veruleikatengingar í sturluðu bjartsýniskasti. Get a grip. Það er ekkert að fara að breytast!“

Illugi Jökulsson rithöfundur er orðinn vígamóður, við að gagnrýna Sigmund Davíð og ríkisstjórnina, en lætur þó hvergi deigan síga. „Þegar ég sat í stjórnlagaráði vorum við staðráðin í að leggja okkar af mörkum til að betrumbæta íslenskt samfélag, meðal annars og ekki síst með því að setja í stjórnarskrá stórbætt ákvæði um gegnsæi og heiðarleika og stjórnsýslu. Stjórnmálamönnum tókst að leggja stein í götu þess starfs. Nú þurfum við öll að leggjast á eitt til að ljúka því!“

Magga Örnólfs spyr var hægt sé að fá hauspoka.
Og þannig er ástandið á Facebook, fólki gengur hreinlega illa að lýsa því hversu fram af því er gengið. Frosti Logason útvarpsmaður er einn þeirra sem tjáir sig: „Crony-kapítalistar og olígarkar með eignir í aflandsfélögum stjórna ríkisstjórn Íslands. Næst á dagskrá, sala ríkiseigna. #fallegagrínið

Guð hjálpi Sigmundi

Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingar vill að forsætisráðherra segi af sér strax:

„Þvílík sturlun krakkar! Ég er orðlaus! Ég á von á því að forsætisráðherra segi af sér strax og #kastljós er búið, þing verði rofið og boðað verði til kosninga eins og skot. Þetta er ekki bara #vanhæfríkisstjórn - hér er um að ræða þvílíkan skort á siðferði, heiðarleika og trausti sem fer í sögubækurnar og verður erfitt að toppa! Slíkir einstaklingar eiga ekkert erindi í stjórnmál og fá ekki að stjórna þessu landi einn dag í viðbót. Sjáumst niðri á Alþingi á morgun!#cashljós #tortólastjórnin #lifibyltingin

Meira að segja hinn frjálshyggjusinnaði lögmaður, Jón Magnússon, sem hefur átt í væringum við einmitt Semu Erlu, er þessu sammála:

Helga Vala: Nú verður forseti að rjúfa þing og skipa utanþingsstjórn þar til hægt er að halda þingkosningar.
„Nú gæti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra tekið Séra Sigvalda úr Manni og Konu sér til fyrirmyndar og sagt "Ætli það sé ekki tími til kominn að biðja Guð að hjálpa sér". Sigmundi Davíð ber að segja af sér þegar í stað sem og öðrum þeim kjörnum fulltrúum sem beraðir hafa verið að því að eiga fjármuni í skattaskjólum og hafa þrætt eða gefið misvísandi upplýsingar um það. Gjör rétt þol ei órétt.“

Stjórnina frá strax

Helga Vala Helgadóttir er einnig lögmaður, sem og Jón, og hún vill stjórnina frá: „Nú verður forseti að rjúfa þing og skipa utanþingsstjórn þar til hægt er að halda þingkosningar. #hreinsumút

Ómar R. Valdimarsson blaðamaður þarf ekki mörg orð: „Ókey bæ.“

Ólafur Arnarson hagfræðingur hefur þetta til málanna að leggja: „Mér segir svo hugur að forsætisráðherra hafi með ótrúlegri framkomu sinni og ósannsögli fyllt Austurvöll á morgun!“

Og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, vill valdið til fólksins: „1% elítan á og stjórnar Íslandi. Nú er það í höndum okkar hinna 99%-anna hvert framhaldið verður!“ Og flokkssystir hennar einnig, Björk Vilhelmsdóttir: „Ég vil að forsetinn boði til þingkosninga strax og að ríkisstjórnin segi af sér í kvöld #panamapapers

Í ljósi umfjöllunar Kastljóss um tengsl ráðamanna við aflandsfélög:Í þingmannahópi meirihlutans á Alþingi, í Sjálfstæð...

Posted by Helgi Hrafn Gunnarsson on 3. apríl 2016

Nixon féll ekki vegna þess að sýnt hefði verið fram á að hann hefði fyrirskipað Watergate-innbrotið. Það var cover-up-ið...

Posted by Ólafur Þ Harðarson on 3. apríl 2016

Sjokkerandi uppljóstrun í Kastljósi kvöldsins. Sigmundur hefur tvo kosti, annarsvegar afsögn, hinsvegar útburð. Vona hann velji fyrrnefnda kostinn.

Posted by Lydur Arnason on 3. apríl 2016

Þessi mynd sýnir alvöru málsins í hnotskurn: Ísland komið á hópmynd sem okkur langar ekki að vera á. Komið er í ljós að...

Posted by Árni Páll Árnason on 3. apríl 2016



Fleiri fréttir

Sjá meira


×