Lífið

Kim vildi bara tómatsósu á pylsuna sína

Birgir Olgeirsson skrifar
Kim Kardashian, systir hennar Kourtney Kardashian og fjölskylduvinur Kardashian-fjölskyldunnar, Jonathan Ceban, komu við í pylsuvagni Bæjarins Beztu í dag þar sem þau keyptu sér pylsur. 

Skúli Þórðarson stóð vaktina í vagninum þegar þau lögðu inn pöntun en hann segir föruneytið hafa pantað eina pylsu með engu nema tómatsósu fyrir Kim Kardashian sem var pakkað sérstaklega inn fyrir hana svo hún gæti notið hennar síðar meir.  Fara þau í hóp fjölda frægra sem hafa keypt sér pylsu hjá Bæjarins Beztu.

Þar á meðal Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem fékk sér eina pylsu með sinnepi þegar hann leit við í pylsuvagninn árið 2004. Þá hafa meðlimir hljómsveitarinnar Metallica einnig fengið sér pylsu þar ásamt tónlistarkonunni Cyndi Lauper

Mikið öngþveiti myndaðist þegar Kardashian-systurnar voru á svæðinu og mátti sjá hóp ljósmyndara á svölum Kolportsins á meðan pylsuferðinni stóð. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.