Sjávarútvegsskólinn til Háskólans á Akureyri Svavar Hávarðsson skrifar 25. apríl 2016 07:00 Síldarvinnslan í Neskaupstað setti skólann upphaflega á fót. Mynd/KSH
Sjávarútvegsfyrirtæki á Austurlandi og Háskólinn á Akureyri hafa undirritað samning um að háskólinn taki að sér að hafa umsjón með starfi Sjávarútvegsskólans. Skólinn er ætlaður nemendum sem nýlokið hafa 9. bekk grunnskóla og er markmið hans að miðla þekkingu í sjávarútvegi til nemenda í sjávarbyggðum og á nærliggjandi svæðum. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir frá þessum tímamótum en fyrir hönd háskólans mun Sjávarútvegsmiðstöð hans annast skólahaldið og skólastjóri verður Sigmar Örn Hilmarsson sjávarútvegsfræðingur. Auk hans verða tveir starfsmenn ráðnir til að sinna verkefninu, segir þar. Á þessu ári verður kennt á sex stöðum á Austurlandi en stefnt er að því að kenna víðar á komandi árum. Kennslustaðir á sumri komandi verða Neskaupstaður, Seyðisfjörður, Fáskrúðsfjörður, Eskifjörður, Vopnafjörður og Höfn. Mun kennslan fara fram í náinni samvinnu við sjávarútvegsfyrirtæki á stöðunum. Sjávarútvegsskóli Síldarvinnslunnar var stofnaður árið 2013 og var þá einungis kennt í Neskaupstað. Árið 2014 fór kennsla fram í allri Fjarðabyggð og var nafni skólans þá breytt í Sjávarútvegsskóli Fjarðabyggðar. Árið 2015 færði skólinn enn út kvíarnar og til samræmis við það var nafni hans breytt í Sjávarútvegsskóli Austurlands. Síldarvinnslan hlaut viðurkenninguna menntasproti atvinnulífsins árið 2015 fyrir frumkvæði að stofnun Sjávarútvegsskólans.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. apríl
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR Innlent Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Erlent Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Innlent Vindstrengir ná mögulega stormstyrk í kvöld Veður „Þetta er bara forkastanlegt“ Innlent Mikilvægt að andlát Hjalta yrði einhverjum til gagns Innlent Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Erlent Lentu með veikan farþega í Keflavík Innlent Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Innlent Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Erlent Fleiri fréttir Efnahagsáform nýrrar stjórnar, gjaldtaka í ferðaþjónustu og tekist á um strandveiðar Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Lentu með veikan farþega í Keflavík 12 milljarða vinnsluhús byggt fyrir lax í Þorlákshöfn „Þetta er bara forkastanlegt“ Mikilvægt að andlát Hjalta yrði einhverjum til gagns „Tifandi tímasprengja“ á Suðurlandi og stökkbreyting áfengissölu Sviptur á staðnum fyrir ofsaakstur á 30-götu Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Biden hyggst senda hergögn að virði átta milljarða til Ísraels Allir séu meðvitaðir um ábyrgðina sem fylgi setu í ríkisstjórn Starf framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar auglýst „Bóndinn á svæðinu er nú ofboðslega rólegur yfir þessu“ Hafnar því alfarið að læknar séu snuðaðir á Suðurlandi Leigubílstjóri á Fljótsdalshéraði safnar jólatrjám Akureyringar eins og beljur að vori „Evrópusuðið“ hverfi ekki með þjóðaratkvæðagreiðslu HSU svarar áhyggjufullum læknum Árni Grétar Futuregrapher látinn Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Kalt en bjart um helgina Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Hættuástand í heilbrigðisþjónustu og óróapúls Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Netsamband komið aftur á í Árbæ Inflúensugreiningar tvöfölduðust milli vikna Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Sjá meira