Bíó og sjónvarp

Fyrsta stiklan úr Jason Bourne

Samúel Karl Ólason skrifar
Matt Damon sem Jason Bourne.
Matt Damon sem Jason Bourne.
Matt Damon og Julia Stiles eru mætt aftur í nýjustu myndinni um ofurnjósnarann Jason Bourne. Fyrsta stiklan úr nýrri mynd, sem heitir einmitt Jason Bourne, var birt nú í morgun. Um er að ræða fjórðu myndina um Bourne og er henni leikstýrt af Paul Greengrass.

Stiklan er stútfull af hasar, bílaeltingaleikjum og slagsmálum. Lítið sem ekkert ert snert á söguþræði myndarinnar er svo virðist sem að enn og aftur verði Bourne skotmark stjórnvalda í Bandaríkjunum.

Auk Damon og Stiles leika þau Alicia VikanderTommy Lee Jones og Vincent Cassel í Jason Bourne. Myndin verður frumsýnd þann 29. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.