Telur tónlist vinna gegn depurð heilabilaðra Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 3. maí 2016 09:30 Magnea með syni sína, Kolbein Tuma sex ára og Hallgrím Orra átta ára. Vísir/Vilhelm „
Nám í listkennslu við Listaháskólann getur leitt mann á ýmsar slóðir. Það veitir fólki rétt til að verða kennarar á sínu listasviði í grunnskóla og framhaldsskóla en þó ég hafi unnið mikið með ungu fólki gegn um tíðina hef ég í dag meiri áhuga á að vinna með eldri borgurum,“ segir Magnea Tómasdóttir söngkona. Hún er að útskrifast úr meistaranámi frá listkennsludeildinni og er ein þeirra sem ætla að kynna það í dag klukkan 16.30 á Laugarnesvegi 91. „Það sem ég er að sérhæfa mig í er tónlistariðkun með fólki með Alzheimer og aðrar tegundir heilabilunar,“ segir Magnea. „Mamma greindist 61 árs gömul með heilabilun og lifði í 12 ár, svo greindist pabbi með Alzheimer og hann dó fyrir hálfu ári. Við notuðum tónlist mikið í umönnun þeirra beggja. Meistararitgerð mín spratt dálítið út frá því, enda snerist líf mitt um þau í 20 ár.“ Magnea segir tónlistarhlustun og tónlistariðkun geta verið ákjósanlegan part af umönnun heilabilaðra. Hún auki lífsgæði þeirra, minnki depurð og auki virkni. „Í gegnum tónlistina sést oft í manneskjuna bak við sjúkdóminn,“ fullyrðir hún. Hugmyndir eru uppi um að Listaháskólinn fari af stað með námskeið til að þjálfa tónlistarfólk í að sinna svona störfum, að sögn Magneu. Hún hefur áhuga á að fara til London og kynna sér aðferðir Englendinga, enda segir hún þá framarlega á þessu sviði, er þegar búin að fara út og komast að því. Magnea ætlar að lýsa náminu í listkennsludeildinni óformlega í dag niðri í Laugarnesi og svara fyrirspurnum. „Það sem er svo gott við þessa deild er að þar mætist listafólk úr hinum ýmsu greinum, tónlist, sviðslistum og sjónlistum, þannig að maður fær innsýn í svo margt. Það er lærdómsríkt.“
Mest lesið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Allt niður í tíu ára vilji viðhalda unglegri húð Lífið Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Sigmundur birtist fyrirvaralaust Lífið Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Lífið „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Fóru líka upp á eiginkonuna fyrir besta útsýni landsins Draumkennt brúðkaup á Sardiníu Stórborgar fílingur í sögufrægu húsi Jóns Davíðs og Birgittu Ekki lengur undir sérstöku eftirliti Draumadrengur Söndru og Hilmars kominn í heiminn Sjá meira