Allir og ömmur þeirra í háloftunum Guðrún Ansnes skrifar 25. maí 2016 13:45 Um 1200 flugfreyjur og flugþjónar starfa hjá Icelandair í sumar.
Þriðjungs aukning er á íslenskum flugliðum í ár samanborið við sama tíma í fyrra og sést það hæglega á samfélagsmiðlunum þar sem vart er þverfótað fyrir sjálfsmyndum nýbakaðra flugþjóna sem annað hvort tylla sér lauflétt í vélarhreyfilinn eða standa teinréttir í júníforminu. Margir velta eflaust fyrir sér hvað sé í gangi og hvort yfirhöfuð verði einhver eftir á jörðu niðri í sumar til að sinna öðrum störfum. Slík er fyrirferð nýútsprunginna flugliða á samfélagsmiðlunum um þessar mundir. Hvað er eiginlega málið með þessa aðsókn? Sigríður Ása, formaður Flugfreyjufélags ÍslandsMynd/Aðsend„Við finnum fyrir aukningunni. Fyrirtækin eru að stækka og ráða þar með fleira fólk. Mér sýnist félagsmenn verða rúmlega fimmtán hundruð í ár. Á sama tíma í fyrra vorum við um eitt þúsund. Þetta er met í félagafjölda,“ segir Sigríður Ása Harðardóttir formaður Flugfreyjufélags Íslands spurð um hvort félagið finni fyrir öllum þessum nýliðum sem blasa við á samfélagsmiðlunum. Ingibjörg Lárusdóttir, forstöðumaður flugfreyja og flugþjóna Icelandair, var gestur morgunþáttarins Brennslunnar á FM 957 í gærmorgun og þar var hún á sömu bylgjulengd og Sigríður. Ingibjörg sagði þar að nú í sumar teldu flugfreyjur og -þjónar innan raða fyrirtækisins rúmlega tólf hundruð hausa. Hún giskar á að fyrir áratug hafi tala þjónanna verið um þrjú til fjögur hundruð, svo fjölgunin sé gríðarleg. „Aldrei neinir tveir dagar eins, veist aldrei hvernig dagurinn verður þegar þú mætir í vinnuna, nýtt fólk og nýjar áskoranir. Það er aðalmálið,“ segir hún spurð um hvaðan aðdráttaraflið sé komið. Hún segist gera ráð fyrir að vöxtur innan stéttarinnar komi aðeins til með að halda áfram. „Aðsóknin er gríðarleg. Við sjáum ekki fram á flugfreyjuskort,“ segir hún þegar Hjörvar Hafliðason, annar þáttarstjórnenda, spyr hvort leita þurfi fanga út fyrir landsteinana. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW airSvanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, tekur í sama streng og segir áhuga fólks á starfinu mjög greinilegan. „Síðast þegar við auglýstum sóttu um fimmtán hundruð manns um starf. Í þeim hópi voru til dæmis lögreglumenn, hjúkrunarfræðingar, lögfræðingar, sálfræðingar og leikarar ásamt fólki úr öðrum starfsstéttum,“ segir Svanhvít. „Hundrað og fimmtíu manns voru á launaskrá síðasta sumar, en í ár verða þrjú hundruð og fimmtíu manns.“ Hún segist gera ráð fyrir að það sem heilli umsækjendur séu ferðalögin, skemmtilegt starfsumhverfi og mannlegu samskiptin. „Við teljum að starf flugliða hafi alltaf verið eftirsóknarvert og virðist engin breyting vera þar á. Hæfir umsækjendur eru alltaf langt umfram þann fjölda af störfum sem eru í boði hverju sinni.“ Þó að stéttin þyki kvenlæg í margra hugum er þó ýmislegt að breytast þó betur megi sannarlega gera. Ingibjörg segir hlut karla tíu prósent innan Icelandair og samkvæmt tölum Svanhvítar eru rúmlega sautján prósent þjóna WOW air karlar. Báðar höfðu orð á að áhugi væri á að fjölga körlum innan flugfélaganna. Burtséð frá því má sannarlega segja að flugfreyju- og þjónaáhuginn laði til sín starfsfólk þvert á starfsstéttir. Í sumar munu til að mynda tónlistarmenn, fyrirsætur, fegurðardrottningar, lögfræðingar, leikarar, uppistandarar, bloggarar og svo mætti lengi telja, skenkja kaffi í bolla og sjá um öryggi ferðalanga til og frá Íslandi.
Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Sjá meira